150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[21:43]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti telur rétt að það komi fram, fyrir þá þingmenn sem voru kannski ekki viðstaddir upphaf þessara orðaskipta, að það var forseti sjálfur sem gerði athugasemdir við klæðaburð hv. þm. Björns Leví Gunnarssonar. Ég sé mér til mikillar ánægju að hv. þingmaður hefur brugðist vel við og er nú klæddur eins og viðeigandi er hér í salnum.