sóttvarnaaðgerðir og efnahagsaðgerðir.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að það er gott að við séum komin aftur af stað á þinginu og það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að lýðræðið fer ekki í sóttkví. Það skiptir auðvitað máli að við eigum áfram þetta mikilvæga samtal á Alþingi Íslendinga um þá stöðu sem við erum í núna, bæði hvað varðar sóttvarnir og efnahagslegar og samfélagslegar ráðstafanir.
Ég vek athygli forseta á því að klukkan í púltinu er í einhverri skógarferð, við skulum orða það þannig. Hún er alla vega … (ÞKG: Þetta er kannski bara tímalaus klassík.) Þessi klukka er tímalaus klassík. [Hlátur í þingsal.] En ég vek athygli forseta á þessu því að ég tala bara þangað til hún hættir.
Hv. þingmaður spurði um sóttvarnaráðstafanir. Staðan er auðvitað þannig núna, eins og kemur fram í ágætri færslu hjá Thor Aspelund núna í morgun, að rauð flögg eru alls staðar, hvort sem litið er til nýgengis smita eða alvarleika veikinda. Staðan er alvarleg. Þess vegna var mjög mikilvægt að grípa inn í með afgerandi hætti. Ég skynja, eins og við öll, þreytu í samfélaginu á þessu ástandi en ég skynja líka mikinn skilning á því að það er nauðsynlegt að grípa inn í með afgerandi hætti gagnvart sóttvörnum. Okkur tókst mjög vel upp í því að ná tökum á faraldrinum í fyrstu og annarri bylgju og það er engin ástæða til að ætla annað en að við munum líka ná tökum á þriðju bylgju með því að fylgja enn og aftur ráðleggingum okkar besta fólks og byggja á þeim gögnum og þeirri þekkingu sem við höfum þegar öðlast í baráttunni við faraldurinn.
Er eining í ríkisstjórninni? Já, það er eining í ríkisstjórninni um þessar aðgerðir. Þó að fundir séu langir segir það ekki neitt annað en það að fólk vill fara ítarlega yfir aðgerðirnar og stöðuna. Hún veldur okkur öllum áhyggjum. Ég vil nota tækifærið hér og hvetja okkur öll til þess að gera allt sem við getum til að stuðla að samstöðu því ef okkur tekst að takast saman á við þessa þriðju bylgju þá munum við ná henni hraðar niður en ella. (Forseti hringir.)
Já, allt í lagi, ég fæ þá að ræða aðeins efnahagsráðstafanir í síðara svari.
(Forseti (SJS): Ég hygg að hæstv. forsætisráðherra hafi nú fengið sínar tvær mínútur og vel það en ég biðst velvirðingar á þessu með klukkuna. Það er eitthvert flökt á atkvæðagreiðslukerfinu líka sem á nú að vera lokað þannig að eitthvað er að stríða okkur aðeins í tækninni. Forseti mælir þá tímann upp á gamla móðinn.)