sköpun nýrra starfa.
Virðulegi forseti. Í vor kvörtuðu stjórnvöld yfir því að það væri svo mikil óvissa að ríkisstjórnin gæti ekki lagt fram áætlun sína út af kófinu. Þing og þjóð þurftu að bíða í hálft ár eftir stefnu stjórnvalda. Fyrir helgi var biðinni loksins lokið og stefna stjórnvalda leit dagsins ljós. Í stuttu máli er stefna stjórnvalda svona: Það verður hallarekstur og niðurskurður nema við fáum aftur 2 milljónir ferðamanna hingað til Íslands árið 2023 í staðinn fyrir árið 2026. Bónus ef loðnan kemur aftur.
Þurftum við í alvörunni að bíða í hálft ár eftir þessu? Við stöndum frammi fyrir risavöxnu vandamáli, stærstu efnahagskreppu í heila öld, og lausnin er að bíða og vonast eftir fleiri ferðamönnum. Atvinnuleysi nálgast hraðbyri 10% og mun að öllum líkindum haldast þar fram yfir áramót hið minnsta þrátt fyrir stefnu stjórnvalda.
Það er stórkostlega merkilegt að á aðeins einum stað í fjármálaáætluninni eru sett fram markmið um ný störf. Markmiðið er að búa til heil 200 störf á næsta ári í þekkingargeiranum þegar þörfin er hundraðföld sú tala. Á meðan bíður einn af hverjum tíu á atvinnuleysisbótum, tvö af hverjum tíu hjá ungu fólki sem bíður eftir íbúðum á Suðurnesjum. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Er planið virkilega bara að bíða og vona hið besta um komu ferðamanna? Hvers vegna eru engar aðgerðir í fjármálaáætlun um ný og varanleg störf? Er þessi ríkisstjórn með stefnu í atvinnumálum yfirleitt?