sköpun nýrra starfa.
Herra forseti. Ég verð að segja að ég átta mig eiginlega ekki á því hvert hv. þingmaður er að fara. Sú fjármálaáætlun sem hér liggur frammi felur annars vegar í sér þá stefnumörkun að við erum ekki að ráðast í niðurskurð. Það er einfaldlega ekki svo, herra forseti. Við erum einmitt að segja: Við ætlum að standa vörð um þann árangur sem hefur náðst, hvort sem er í heilbrigðismálum, velferðarmálum eða menntamálum.
Og ekki nóg með það heldur ætlum við að gefa í þegar kemur að menntun og auknu framboði á henni. Ég vil nefna sérstaklega nýja ákvörðun um að efla og fjölga menntunartækifærum á Suðurnesjum í gegnum menntanefnd Suðurnesja þar sem atvinnuástand er einmitt mjög slæmt. Við erum að efla þennan þátt sérstaklega, af því að við vitum að þetta er ein af þeim leiðum sem virka. Það skiptir máli fyrir fólk að geta sótt sér ný tækifæri. Ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður sé sammála því þótt hann láti hér ólíklega.
Síðan erum við að horfa til lengri tíma. Engin önnur ríkisstjórn hefur lyft öðru eins grettistaki þegar kemur að grunnrannsóknum og nýsköpun, hvort sem það er í gegnum eflingu samkeppnissjóða háskólastigs, endurgreiðslur til rannsókna og þróunar, stofnun nýs nýsköpunarsjóðs, Kríu, eða eflingu Tækniþróunarsjóðs. Þetta eru fjárfestingar sem munu skipta verulegu máli. Ég veit alveg hvað einhverjir hv. þingmenn munu segja. Þeir munu segja: Af hverju ekki meira? Af hverju ekki meira strax? Ég þekki þennan geira ágætlega og veit að það skiptir einmitt máli að hafa skýra framtíðarsýn og auka jafnt og þétt. Þessi fjárfesting mun taka tíma. Og já, það munu verða til fleiri störf hér í þekkingargeiranum. Og já, við munum sjá aukna verðmætasköpun á öllum sviðum samfélagsins.
Ég nefni líka matvælasjóðinn sem farið var af stað með þar sem ætlunin er að auka nýsköpun í matvælaframleiðslu sérstaklega. Eigum við Íslendingar tækifæri þar? Já, við eigum heilan helling af ónýttum tækifærum sem loksins er verið að sinna, annars vegar með þessum sjóði og hins vegar með aukningu til garðyrkjubænda og sömuleiðis fleiri tækifærum þar.
Síðan eru það fjárfestingar. Ætlar hv. þingmaður að segja að ekki skapist störf við það að ráðast í samgönguframkvæmdir, byggingarframkvæmdir og annað slíkt sem er verið að boða? Það er auðvitað ekki þannig, herra forseti, að hægt sé að koma hér upp og tala með þeim hætti sem hv. þingmaður gerði. (Forseti hringir.) Hér er verið að beita ríkissjóði af fullum krafti til að við getum (Forseti hringir.) vaxið út úr þessari kreppu.