þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður fór yfir er hér ekki um að ræða almenna heimild heldur eitt skref í þá áttina. Ég held að það sé skynsamlegt að við tökum ekki stóra stökkið akkúrat núna heldur fetum okkur áfram í átt að aukinni fjarvinnu.
Ég velti samt fyrir mér hvort við þurfum skýrari skilgreiningar á ákveðnum atriðum í þessu máli, eins og t.d. varðandi samgöngutruflanir. Hv. þingmaður sagði hér að það ætti við þegar þingmenn væru sannanlega tepptir heima í kjördæmi. Ég velti fyrir mér hvort við þurfum að vera með einhverja skilgreiningu á hvað felst í því, hvort leggja þurfi fram vottorð um samgöngutruflanir, eða hvað það er, þannig að þetta verði ekki að almennri heimild. Ef við miðum bara við huglægt mat hvers og eins gæti freistingin orðið að nýta þetta meira en efni standa til.
Mig langar að spyrja um heilsufarsástæður sem varða þingmanninn sjálfan og veikindi barna. Þegar fólk er veikt eða þegar fólk sinnir veiku barni er það bara veikt og er ekkert að sinna vinnunni. Þannig virkar það á öllum vinnustöðum. Ef fólk er veikt heima eða að sinna veiku barni látum við það ekki mæta á fundi þótt það sé í fjarfundi. Ég velti fyrir mér hvort þessi þáttur sé yfir höfuð skref í rétta átt. Veikt fólk á bara að fá að vera veikt og foreldrar veikra barna eiga bara að fá að annast um þau. Ef við látum veika þingmenn mæta á fundi, sem þeir geta alveg eins kallað varamenn á, er ég ekki viss um að Alþingi gangi á undan með góðu fordæmi varðandi það hvernig fólk á að umgangast veikindarétt sinn á vinnumarkaði.