þingsköp Alþingis.
Virðulegur forseti. Það sem vinnandi fólk og vinnustaðir hafa lært í Covid er að þegar við finnum fyrir einkennum veikinda eigum við ekki að harka af okkur, mæta á vinnustaðinn og hætta á að smita fólk. Þetta er ein af stóru lexíunum sem eiga væntanlega eftir að breyta því hvernig fólk sinnir vinnu í framtíðinni. Á sama tíma eru mörkin á milli vinnu og heimilis að vissu leyti að mást út sökum fjarvinnunnar. Það er eitthvað sem við þurfum að gæta okkur á. Þetta snýst ekkert um hvort vinnuverndarlöggjöf sé brotin á Alþingi heldur um það hvort við sem vinnustaður ætlum að viðhalda menningu þess að harka af sér veikindi og mæta á fundi eða að stilla veikum börnum fyrir framan YouTube og taka einn nefndarfund. Þetta er ekki spurning um að pína þingmenn til að gera þetta heldur er þetta spurning um að opna ekki á þennan möguleika sem er, að ég tel, slæmt fordæmi. Þegar fólk er veikt eða þegar fólk er heima að sinna veikum börnum er það í veikindaleyfi og á ekki að vinna.
Ég skil vel hugsunina að baki þessu en hver og einn þingmaður er bara ekki það ómissandi að hann þurfi að mæta á alla fundi. Þess vegna eru allir þingmenn í öllum nefndum með varamenn. Ef sá varamaður forfallast geta allir þingflokkar kallað til einhvern annan fulltrúa úr þeim þingflokki til að fylla sæti viðkomandi. Við erum ekki það ómissandi að við þurfum að vinna þegar við erum veik.