fjárlög 2021.
Herra forseti. Við ræðum fjárlög ársins 2021. Hæstv. fjármálaráðherra fór, má segja, í heild sinni yfir fjárlögin í ítarlegri framsöguræðu hér fyrr í dag og ég ætla ekki að fara að endurtaka allt sem þar var komið inn á eða að fara yfir fjárlagafrumvarpið í heild sinni. En mig langar að nota svolítinn tíma hér í dag til að fara yfir tiltekin atriði í fjárlagafrumvarpinu sem ég tel að séu sérlega mikilvæg og skipti miklu máli, ekki hvað síst í því efnahagsástandi sem er núna og við horfum fram á á komandi ári.
Það sem er einna markverðast í fjárlagafrumvarpinu í mínum huga er hlutur sem er alls ekki sjálfgefinn, þ.e. að þrátt fyrir lægri tekjur ríkissjóðs, vegna þess einfaldlega að ríkissjóður fær minni tekjur, m.a. í gegnum skatta þar sem umsvifin í samfélaginu eru minni vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, þá er ekki verið að skera útgjöld niður á næsta ári heldur verða þau hreinlega aukin á sumum stöðum til að standa undir tímabundnum sértækum mótvægisaðgerðum og atvinnuleysi. En af umræðunni mætti stundum halda að við værum að ræða niðurskurðarfjárlög. Svo er alls ekki og það eitt og sér er gríðarlega mikilvægt efnahagslegt og samfélagslegt atriði sem er nauðsynlegt að halda til haga. Í fjárlagafrumvarpinu er nefnilega lögð áhersla á að verja þann mikla árangur sem hefur náðst á kjörtímabilinu. Velferðarkerfið er varið fyrir áhrifum Covid-kreppunnar. Opinberar fjárfestingar eru auknar og þar með fjölgar störfum. Framlög til heilbrigðis-, umhverfis- og nýsköpunarmála eru aukin stórlega og raunar líka til mennta- og menningarmála.
Í fjárlagafrumvarpinu á bls. 88 er mynd, eða tafla, þar sem skipting fjárheimilda ríkissjóðs fyrir árið 2021 er sýnd og hún er gríðarlega gagnleg því að hún útskýrir í raun hvar hinar stóru tölur í fjármálum samfélags okkar liggja. Þar sést að 26% fjárheimildanna á næsta ári fara í félags-, húsnæðis- og tryggingamál og 25% fara í heilbrigðismál, þ.e. rétt rúmur helmingur fjárheimildanna fer í það sem við köllum í daglegu tali velferðarkerfið okkar.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga, annars vegar þegar við tölum um það að við erum að verja velferðarkerfið fyrir áhrifum Covid-kreppunnar og hins vegar þegar við erum að ræða um upphæðir sem fara í ýmis önnur mál. Þar erum við á mörgum stöðum að auka gríðarlega mikið í, en ef það er reiknað sem prósenta af öllum fjárheimildunum þá getum við fengið út ansi lága tölu ef maður vill fara út í slíka talnaleikfimi einfaldlega vegna þess að velferðarhlutinn, sem ég held að okkur sé öllum svo gríðarlega annt um, er svo óskaplega veigamikill. Mér þykir vænt um að búa í samfélagi sem leggur svona mikla og ríka áherslu á velferðarmálin. Það eru fleiri töflur í fjárlagafrumvarpinu, bæði á blaðsíðunum á undan og eftir þeirri skemmtilegu bls. 88 og ég mæli með því, fyrir þá sem langar að glöggva sig á því í hvað skattpeningarnir þeirra fara og hvernig útgjöldin skiptast, að skoða þessar myndir sem eru á bls. 87, 88 og 89, því að þær segja okkur á frekar fljótlegan hátt ansi mikið um ríkisfjármálin.
Ég talaði um að við værum að verja velferðarkerfið nú á tímum þessarar Covid-kreppu og ég held að við áttum okkur öll á því að það skiptir gríðarlega miklu máli til að takast hreinlega á við þá heilbrigðisógn sem steðjar að samfélaginu vegna kreppunnar. En þetta þýðir svo miklu meira en aðeins það. Við stöndum vörð um allt hitt sem er í velferðarkerfinu og það skiptir líka gríðarlega miklu máli í þessu samhengi að um leið og við erum að verja og viðhalda grunnþjónustu erum við að koma í veg fyrir atvinnuleysi í starfsgreinum, opinberum starfsgreinum, þar sem konur eru í miklum meiri hluta. Það er alveg þekkt að þegar niðurskurði er til að mynda beitt í kreppu og skorið niður í opinberri þjónustu þá er það eitt af því sem gerist að þjónusta, sem veitt er af hinu opinbera, flyst inn á heimilin og verður þar að ólaunaðri vinnu sem oft er í höndum kvenna í samfélaginu. Þetta er atriði sem mér finnst skipta máli að draga fram í þessari umræðu, því að með því að verja velferðina erum við líka að verja störf og í þessu tilfelli, þegar kemur að heilbrigðiskerfinu, erum við mjög oft að verja kvennastörf og koma í veg fyrir aukið álag sem lendir oft á konum. Þetta skiptir svo sannarlega máli í sambandi við það í hvernig samfélagi við búum.
Mér finnst raunar mikilvægt að í fjárlagafrumvarpinu er fjallað nokkuð ítarlega um kynjaða fjárlagagerð og þau áhrif sem þær aðgerðir sem verið er að ráðast í með þessu fjárlagafrumvarpi hafa á kynin. Þar sést til að mynda að hluti af innspýtingunni, sem ég held að við séum öll sammála um að sé gríðarlega mikilvæg og er í framkvæmdageiranum, m.a. í því að styrkja vegakerfið okkar og samgöngukerfið, eru aðgerðir sem gagnast fyrst og fremst körlum. Ég held að mikilvægt sé að við áttum okkur á þessu þegar við ræðum þessa hluti í fjárlagafrumvarpinu, að það getur haft ólík áhrif á kynin hvar fjármagnið ber niður. Það þarf ekkert að vera slæmt eins og þegar kemur að vegaframkvæmdunum, að það séu fyrst og fremst störf sem karlmenn vinna, heldur er bara mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir þessu því að það segir okkur svo gríðarlega margt um samfélagið okkar og m.a. það hve vinnumarkaðurinn er kynskiptur.
Ef litið er á útkomuna, þegar búið er að fara í ýmsar samgöngubætur, þegar búið er að kynjagreina það eins og reynt er að gera í fjárlagafrumvarpinu, kemur í ljós að það hefur oft jákvæð eða jákvæðari áhrif á vinnu- og atvinnuþátttöku og atvinnusvæði kvenna. En mér finnst alveg gríðarlega mikilvægt að fjallað sé um þetta í fjárlagafrumvarpinu því að þetta er eitt af því sem við getum notað á svipaðan hátt og töflurnar og skýringarmyndirnar sem eru hér einnig til þess að átta okkur betur á því hvar og hvernig fjármagn hefur áhrif í samfélaginu.
Herra forseti. Af því að ég minntist aðeins á það að framlög til heilbrigðis-, umhverfis- og nýsköpunarmála séu aukin stórlega í fjárlagafrumvarpinu langar mig að nefna nokkur dæmi sem skipta gríðarlega miklu máli í heilbrigðismálunum. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að bygging nýs sjúkrahúss telur þar ansi mikið, eðlilega. Þar er um gríðarlega stóra og flókna framkvæmd að ræða, sem ég held að við séum öll sammála um að skipti miklu máli og kannski má segja að það sé ansi gott, akkúrat núna þegar einmitt er mikilvægt að vera með mikil opinber umsvif, að við séum að byggja sjúkrahús. En það er líka verið að halda áfram á þeirri vegferð sem hefur verið mótuð í þessari ríkisstjórn með því að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga enn frekar. Verið er að auka áfram sálfélagslega þjónustu með áherslu á unglinga og börn og verið er að setja aukið fé í byggingu og rekstur á hjúkrunarrýmum. Það eru hlutir sem skipta alltaf máli á öllum tímum, hvort sem kreppa er eða góðæri. En ég held samt að við hljótum að sjá það að vegna til að mynda þeirra sálrænu erfiðleika og þeirrar sálrænt flóknu stöðu sem við erum öll að upplifa vegna Covid-ástandsins, og ekki kannski hvað síst ungt fólk, þá skiptir einmitt mjög miklu máli að þarna sé aukning.
Aðeins að umhverfismálunum. Á kjörtímabilinu hefur verið 47% aukning á fjárframlögum í þann málaflokk. Það skiptir gríðarlega miklu máli til framtíðar. Við þurfum samfélag sem tekur á umhverfismálunum með allt öðrum hætti. Ég held að það sé nokkuð sem allir eru í raun orðnir sammála um. Verið er að auka framlög til nýsköpunarmála og þar eru framlög til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum aukin, endurgreiðsluhlutföll hækkuð sem og fjárhæðarþök sem hafa verið hækkuð á kjörtímabilinu. Einnig er verið að setja meiri peninga í Tækniþróunarsjóð og Rannís. Þetta eru atriði sem skipta máli til að við komum sterkari út úr kreppunni og einnig til að auka fjölbreytileikann í íslensku atvinnulífi.
Ég minntist líka á að framlög til menntamála eru að aukast. Til að mynda er verið að koma til móts við Menntasjóð vegna nýs fyrirkomulags við lánastuðning og styrki til námsmanna, en líka vegna þess að við vitum að nú þegar meira atvinnuleysi er þá fer fleira fólk í nám. Það eru peningar sem er að mínu mati óskaplega vel varið. Svo er verið að fjölga þeim sem geta fengið listamannalaun, sem ég held að vel flestir séu sammála um að sé mikilvægt í þessu Covid-ástandi þar sem við höfum m.a. heyrt um og séð hversu erfitt hefur verið hjá listamönnum, þannig að það er aðgerð í fjárlagafrumvarpinu sem skiptir gríðarlega miklu máli. Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart að framlag er aukið til Vinnumálastofnunar upp á 685 milljónir. Það skiptir auðvitað gríðarlega miklu í því atvinnuástandi sem við erum í núna.
Hér eru fjárlög sem, líkt og ég sagði í upphafi, eru svo mikilvæg, að þrátt fyrir lækkaðar tekjur er ekki verið að skera niður. Það er verið að auka í m.a. í heilbrigðiskerfinu og í umhverfis- og nýsköpunarmálum.
Herra forseti. Mig langar að lokum að nefna það að þrátt fyrir að tekjur ríkisins hafi lækkað er samt verið að standa við það að um þessi mánaðamót verður sú breyting á skattkerfinu sem við höfum rætt um, þ.e. að koma á þriggja þrepa skattkerfi. Það verður lögfest og kemur til fullra framkvæmda. Þessi breyting er stórmál þar sem með þessu lækkar skattbyrði á þá einstaklinga sem hafa lágar atvinnutekjur. Þetta skiptir alveg gríðarlega miklu máli fyrir afkomu heimilanna og þetta er eitt af því sem ég tel að sé mikilvægt að halda til haga. Það munar um þetta og ég tel að við sem styðjum þessa ríkisstjórn eigum og getum verið mjög stolt.
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða í meiri smáatriðum um aðra málaflokka en þá sem ég hef rétt aðeins tæpt á í þessari ræðu. Á morgun munum við ræða fjármálaáætlun til fjögurra ára og þá munu fagráðherrar einnig sitja fyrir svörum þingmanna varðandi sín málefnasvið. Þá verður kafað mun dýpra ofan í hvern málaflokk fyrir sig og ég hlakka til að fylgjast með og mögulega taka þátt í þeirri umræðu.
Ég vil að lokum endurtaka það sem ég sagði í upphafi. Það markverðasta í fjárlagafrumvarpinu er að þrátt fyrir lægri tekjur ríkissjóðs en vænst var erum við með fjárlög sem auka í velferðarkerfið og gera það að verkum að við sem samfélag eigum að geta komið sterk út úr þeim efnahagsþrengingum sem við okkur blasa akkúrat núna.