151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[18:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal ekki bæta miklu við en hv. þingmaður talaði um gagnsæi og ég velti því dálítið fyrir mér. Á þessu ári höfum við farið í gegnum þó nokkra fjárauka, fram og til baka. Við höfum tekið ákvarðanir mjög hratt. Á einungis viku höfum við afgreitt fjárauka sem kemur í gegnum þingið að hluta til gegn því loforði að mjög mikið gagnsæi sé í ákvörðunum um það hvernig fjárheimildirnar verði síðan notaðar.

Mig langar að spyrja hv. formann fjárlaganefndar þó að ég viti svarið: Hafa einhverjar upplýsingar borist um það hvernig farið hefur verið með fjárheimildir síðan við tókum ákvörðunina um fyrsta fjáraukann? Höfum við farið í einhverjar eftirágreiningar á því hvort ákvarðanirnar sem við tókum með svo stuttum fyrirvara hafi skilað þeim árangri sem við bjuggumst við? Og ef aðgerðirnar skiluðu ekki árangri af hverju brugðumst við ekki við til að þær gerðu það ef þær áttu í rauninni að skila einhverjum árangri til að byrja með? En eins og ég sagði áðan vitum við ekki hvaða árangri aðgerðirnar áttu að skila af því að við fáum aldrei upplýsingar.

Við erum í mjög erfiðri stöðu þegar kemur að eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Við skoðum þetta þannig: Já, notuðuð þið þetta og breyttist framkvæmdastigið svona? Var það eins og þið bjuggumst við eða var það meira eða minna eða hvað eiginlega? Við erum alltaf í lausu lofti af því að alltaf er verið að giska, svo ég endi nú á því.