fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Síðastliðið vor samþykkti Alþingi einróma frumvarp Viðreisnar um að Sjúkratryggingar Íslands færu að greiða fyrir sálfræðiþjónustu einstaklinga. Það frumvarps skar sig reyndar úr mjög mörgum þingmannamálum þar sem stór hópur þingmanna var með á málinu og um það ríkti þverpólitísk sátt. Lengi hefur verið kallað eftir greiðara aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og var þetta frumvarp klárlega liður í því. Það er mikið framfaraskref í geðheilbrigðismálum þar sem tryggja átti að þjónusta vegna andlegs heilbrigðis væri veitt á sömu forsendum og þjónusta vegna annarra heilbrigðismála. Eftir að frumvarpið hafði verið samþykkt var haft eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum að það væri aldeilis ekki sopið kálið þótt í ausuna væri komið vegna þess að það ætti eftir að samþykkja fjármögnunina sjálfa. Hann sagði að hæstv. heilbrigðisráðherra yrði að svara því hvernig hún ætlaði sér að gera þetta.
Nú spyr ég starfandi heilbrigðisráðherra: Tókst heilbrigðisráðherra að framfylgja vilja þingsins og tryggja þannig nauðsynlega fjármögnun í þessum málaflokki, eða til vara að færa til fjármuni þannig að vilji þingsins yrði að veruleika? Munu þeir sem þurfa að nýta sér þessa mikilvægu heilbrigðisþjónustu sitja við sama borð og þeir sem nýta sér aðra heilbrigðisþjónustu, rétt eins og þingið kvað upp úr um hér fyrir örfáum mánuðum? Ég get ekki áttað mig á því við lestur fjármálaáætlunar, sem er mjög miður, en það er algerlega útilokað annað en að heilbrigðisráðherra geti svarað þessari spurningu, af eða á.