frumvarp um kennitöluflakk.
Virðulegi forseti. Ég tel að það lýsi sér ágætlega í því að það er ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem hefur lagt málið fyrir þingið, að flokkurinn er þeirrar skoðunar að þeir sem stunda hið eiginlega kennitöluflakk, misnota hlutafélagaformið til að skjóta sér undan skuldbindingum, skilja menn eftir í sárum ítrekað, verði að fá sína refsingu, það þurfi að hafa afleiðingar. Það sem ég held hins vegar að skipti á sama tíma mjög miklu máli eru þessi stóru grundvallarmál eins og atvinnufrelsið. Við þurfum að gæta okkar á því að um leið og við segjum að sá sem hafi orðið gjaldþrota kunni að þurfa að sæta einhverjum viðurlögum vegna þess, ef það hefur verið að gerast ítrekað og við sjáum eitthvert mynstur í því, þá megum við ekki ganga svo langt að skilja eftir tilfinninguna um að það að rekstur misheppnist sé eitthvað sem mönnum þyki vera saknæmt eða að það sé fyrir fram gefið að öllum hlutafélögum, sem hefji rekstur, verði að ganga vel og skila hagnaði um alla framtíð.
Við erum með þetta fyrirkomulag, hlutafélag. Það er stafað út t.d. í Þýskalandi og heitir þar félag með takmarkaða ábyrgð. Í Bandaríkjunum heitir það í raun og veru það sama, félag með takmarkaða ábyrgð. Ég ætla ekki að fara út í ensku og þýsku heitin, en hér köllum við það bara hlutafélag. Svo kemur mörgum á óvart þegar það getur ekki staðið við skuldbindingar sínar að eigandinn ætli ekki að taka reikninginn en þetta er allt saman skrifað inn í lagalega regluverkið og er ekki þess eðlis að það eigi út af fyrir sig hafa umfram afleiðingar nema þegar við sjáum eitthvert mynstur. Það er þar sem ég held að kúnstin liggi, að okkur takist að smíða lagareglur (Forseti hringir.) sem ná utan um það hegðunarmynstur að menn séu að misnota þetta. Um það snýst málið.