151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

innflutningur landbúnaðarvara.

[10:55]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Umræður um tolla, nauðsyn þeirra og áhrif er klassískt umræðuefni og þrætuepli í samskiptum þjóða og í umræðum um einstakar atvinnugreinar, ekki síst í tengslum við landbúnað og samkeppnisstöðu hans og jafnan er þá talað um tollvernd í því samhengi. Hér takast á hagsmunir neytenda um það að vöruverð sé lágt og vöruúrval gott annars vegar og hins vegar hagsmunir þeirra sem framleiða innlendar vörur. Alþjóðleg þróun hefur lengi verið í þá átt að draga úr tollum og öðrum samskiptahindrunum. Mín skoðun er eindregið sú að það sé rétt stefna. Samtímis verður að gæta þess að starfsumhverfi og umgjörð innlendrar framleiðslu sé með því móti að unnt sé að mæta erlendri samkeppni. Um það held ég að flestir séu sammála, ekki síst þegar íslenskur landbúnaður á í hlut. Þar þarf að taka til hendinni og gera miklar lagfæringar á því kerfi sem starfað er undir. Á hinn bóginn á Ísland aðild að margvíslegum alþjóðlegum samningum um viðskipti, þar á meðal um tolla í viðskiptum. Þá samninga eins og aðra á að virða að fullu og framfylgja eftir efni þeirra án undanbragða. Það eru þjóðréttarlegar skyldur samningsaðila sem viðkomandi ríki verða að gæta fyrir sitt leyti. Inn- og útflytjendur verða að fara að settum reglum og yfirvöld að staðreyna að það sé gert.

Herra forseti. Í fjölmiðlum hefur undanfarið verið fjallað nokkuð um tollasamning Íslands og ESB um landbúnaðarvörur. Þar hefur komið fram að farið sé á svig við þær reglur sem gilda með þeim afleiðingum að meira er flutt inn með lægri tollum en samið var um og það hafi valdið íslenskum landbúnaði búsifjum. Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort honum hafi verið gerð grein fyrir þessu misferli, umfangi þess, hvenær það hafi verið gert og til hvaða ráðstafana hafi verið gripið af því tilefni til að koma í veg fyrir slík brot.