kosningar til Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að flytja þetta mál hér í dag. Til að byrja á jákvæðu nótunum get ég tekið undir öll meginmarkmið frumvarpsins. Eins og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hef ég lengi haft áhuga á þessu máli. Ég hugsa að þetta hafi verið fyrsta málið þar sem ég lét til mín taka á stjórnmálavettvangi. Ég hugsa að fyrsta blaðagreinin sem ég skrifaði um stjórnmál hafi verið um þetta. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það sé mikilvægt markmið að jafna atkvæðisréttinn. Ég er hins vegar, og get kannski komið inn á það síðar í þessum umræðum, ekki endilega viss um rétta leiðin sé að gera landið að einu kjördæmi.
Varðandi það frumvarp sem hér liggur fyrir vildi ég kannski spyrja hv. þingmann hvort ekki hafi komið til greina af þeirra hálfu að útfæra skiptingu þingsæta frekar en gert er í frumvarpinu sjálfu. Þarna er lögð til breyting á 1. mgr. 9. gr. kosningalaga en í 8. gr., ef ég man rétt, er tilgreindur þingmannafjöldi í hverju kjördæmi. Landskjörstjórn er svo vissulega látið eftir að jústera, að jafna eftir á eða milli kosninga. Ég hefði haldið að ef á annað borð er verið að hreyfa við ákvæðum kosningalaga væri eðlilegra að skrefið væri stigið til fulls og reynt að útfæra þá breytingu sem mér heyrist hv. þingmaður og flokksfélagar hennar vera að leggja hér til.