151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

breytingar á stjórnarskrá.

[15:06]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Nú hafa 41.623 manns skrifað undir. Ég verð að viðurkenna að þegar ég samdi þessa fyrirspurn þá hafði ég í huga nokkur möguleg svör sem forsætisráðherra gæti komið með og var undirbúinn undir nokkur þeirra. Ég var ekki undirbúinn undir þetta. Ég skil málflutning forsætisráðherra þannig, og vona innilega að forsætisráðherra leiðrétti mig, að það sé umsögn Feneyjanefndarinnar frá 2013 sem geri það að verkum að hæstv. forsætisráðherra vilji víkja í veigamiklum atriðum frá drögum stjórnlagaráðs. Ef hæstv. forsætisráðherra er þeirrar skoðunar að við eigum að setja nýja stjórnarskrá á grundvelli þeirra draga þá eigum við auðvitað að leggja vinnu í því að laga þau vandamál sem bent hefur verið á, taka við þeim athugasemdum og gera uppfærslur á drögum stjórnlagaráðs. En það er ekki það sem var gert. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að við eigum að ræða málið í þingsal, enda höfum við, Píratar og Samfylkingin og fleiri, lagt það fram hér til umræðu.

Mig langar að nýta seinni spurninguna til þess að spyrja hæstv. ráðherra hvort ég hafi skilið hana rétt.