151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

breytingar á stjórnarskrá.

[15:07]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður spyr hvort hann hafi skilið mig rétt. Ég átta mig eiginlega ekki á því hvernig hann skildi mig. Hann kom hér upp og vitnaði til þess að Feneyjanefndin teldi að við þyrftum að gefa góðar skýringar á því af hverju ferlinu hefði verið breytt með þessum hætti. Ég er sammála því og ég svaraði því að besta leiðin til að gefa góðar skýringar á því væri að eiga efnislega umræðu um þær tillögur sem m.a. Píratar og Samfylkingin leggja væntanlega fram, sem byggja á drögum stjórnlagaráðs, en líka þær tillögur sem við höfum verið að vinna að á vettvangi formanna flokkanna. Við ættum efnislega umræðu um hluti sem deilt hefur verið um, eins og fullt gjald eða eðlilegt gjald miðað við ólíkar auðlindir og fleira. Það er langbesta leiðin til að eiga gagnsæja umræðu gagnvart fólkinu í landinu. En ég leyfði mér líka að benda á að Feneyjanefndin gerði mjög víðtækar efnislegar athugasemdir við drög stjórnlagaráðs og ég held að við þurfum að taka þær með í reikninginn þegar við eigum þessa efnislegu umræðu. Það er nú allt og sumt sem ég kalla eftir. Ef hv. þingmaður hefur skilið mig þannig að ég kalli eftir því einmitt að við förum í inntak málanna, hefur hann skilið mig rétt. Það er það sem ég tel að Alþingi eigi að gera.