fjárhagsstaða sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Við í Viðreisn höfum frá upphafi faraldursins stutt ríkisstjórnina í öllum þeim skrefum sem tekin hafa verið til að mæta efnahagslegum afleiðingum veirufaraldursins. Við höfum hvatt ríkisstjórnina til að taka stærri skref en hún hefur gert til að koma til móts við þarfir heimila og fyrirtækja. Auðvitað erum við meðvituð um að ekki er hægt að bjarga öllum en skrefin þurfa að vera stærri. Við þurfum líka að gæta að því að við skiptum ekki samfélaginu upp í tvo hópa, þann hóp sem veiran bitnar lítið sem ekkert á og svo þann hópinn sem veiran bitnar mikið á og mun mæta miklum erfiðleikum, bæði félagslegum og efnahagslegum. Þetta þurfum við að passa upp á. Það er margt gott, eins og ég segi, sem ríkisstjórnin hefur gert í þá veru en margt sem má líka brýna hana til betri vegar með.
Þegar kemur að sveitarfélögunum þá er lítil efnahagspólitík í því hjá ríkisstjórninni, sérstaklega þegar við horfum á fjármálaáætlunina, ef hún ætlar sér að halda kerfinu gangandi — og skilaboðin eru þau að við ætlum að halda kerfinu gangandi með fjárfestingum og litlum niðurskurði, við erum sammála því — að senda síðan út þau skilaboð til sveitarfélaganna sem sjá um alla þessa nærþjónustu, m.a. félagsþjónustuna, eru með stórt og mikið hlutfall í útgjöldum til skóla og velferðarmála og félagsmála, að þar eigi að draga saman, þar eigi að draga saman fjárfestingar og skera niður í félagsmálum. Eins og Kristrún Frostadóttir hagfræðingur sagði svo réttilega í bæði Silfrinu og Sprengisandi í gær er það síðasta sem ríkið ætti að vilja núna að sveitarstjórnir fari að vinna gegn eigin örvun af aðgerðum, þ.e. gegn örvunaraðgerðum ríkisstjórnarinnar sem hafa margar hverjar verið alveg ágætar.
Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hver eru skilaboðin til sveitarfélaganna? Er ætlunin að halda áfram með samtöl við sveitarfélögin og styrkja þau og styðja með því að hjálpa til varðandi lánveitingar, t.d. lán á betri kjörum en gengur og gerist? Eða eru skilaboðin enn þá þau af hálfu ríkisstjórnarinnar að sveitarfélögin eigi að draga saman seglin, að þau eigi að draga saman seglin í fjárfestingum og skera niður í félags- og velferðarmálum?