fjárhagsstaða sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég ætla að hvetja forsætisráðherra og ríkisstjórnina til þess að taka mynduglega á sértækum vanda tiltekinna svæða á landsbyggðinni, til að mynda Suðurnesja. Það þýðir ekki að nálgast Suðurnesin eins og gert var eftir WOW þar sem komið var með, að ég held, 200 eða 250 milljónir og síðan voru þau látin algerlega afskiptalaus. Þess vegna fagna ég því ef forsætisráðherra horfir sértækt á vandann. En ég vil líka spyrja, og ég vil helst fá svar frá forsætisráðherra, hvort eitthvað meira verði gert eða stigin frekari skref. Forsætisráðherra er ákveðinn vandi á höndum þar sem hún starfar með tveimur öðrum flokkum í ríkisstjórn sem bera ekkert sérstaklega mikið skynbragð á eða sýna sérstaka samúð í garð höfuðborgarinnar sem sinnir gríðarlega mikilvægri félagslegri þjónustu, meiri en nágrannasveitarfélögin. Þannig að það er auðvitað vandamál þegar maður finnur fyrir ákveðinni andúð á sveitarstjórnarstiginu frá samstarfsflokkum forsætisráðherra í ríkisstjórn, sérstaklega af því að menn eru með allt á hornum sér gagnvart Reykjavík. Samúð mín liggur því hjá forsætisráðherra í þeim efnum.
Ég ítreka spurningu mína: Hvað á gera meira varðandi sveitarfélögin? (Forseti hringir.) Ég fagna því ef samtalið er í gangi, en ég óska eftir skýrum svörum: (Forseti hringir.) Ætlar ríkisstjórnin að bæta enn frekar í þetta samtal við sveitarfélögin (Forseti hringir.) þannig að við horfum ekki upp á niðurskurð í fjárfestingum og niðurskurð í velferðarþjónustunni, þvert gegn (Forseti hringir.) þeim áformum sem ríkisstjórnin hefur sjálf verið að stefna að?