fjárhagsstaða sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég nefni það vegna sameiginlegrar yfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga að heildarstuðningur til viðspyrnu fyrir sveitarfélögin á grundvelli hennar nemur hátt í 5 milljörðum eða 4,8 milljörðum. Inni í því eru ekki ýmis sértæk framlög. Ég vil sérstaklega nefna, af því að hv. þingmaður nefnir Suðurnesin þar sem ástandið er mjög alvarlegt, að þar var verið að taka ákvörðun um að setja á laggirnar nýtt menntanet, sem ég veit að hv. þingmaður fagnar vafalaust, og verja allt að 300 milljónum í menntaúrræði fyrir atvinnuleitendur sem er auðvitað stórmál. Hins vegar er það mín skoðun að við þurfum að horfa annars vegar á sérstakrar aðstæður í ólíkum sveitarfélögum og horfa á þau verkefni sem vega þyngst og svo þurfum við líka, af því að það hefur verið þessi samanburður við önnur Norðurlönd, að rýna betur í þann samanburð. Þar er töluvert stærri hluti af opinberri þjónustu á hendi sveitarfélaga en á Íslandi. Enn fremur eru sveitarfélög á Íslandi með sjálfstæða tekjustofna. Það er ekki alls staðar raunin á Norðurlöndum. Það er unnið núna að nákvæmari rýni á þessu (Forseti hringir.) þannig að þessi samanburður verði raunhæfari.
En þetta samtal heldur áfram. Sveitarfélög og ríki sátu með aðilum vinnumarkaðarins (Forseti hringir.) bara í morgun á fundi þjóðhagsráðs þannig að þessu samtali vindur áfram.