151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

hugsanlega stækkun Norðuráls.

[15:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður spyr mig fregna af stækkun álvers Norðuráls sem er nú ekki á mínu borði. Það snýst væntanlega annars vegar um orkukaup þess ágæta fyrirtækis og hins vegar um möguleika þeirra á sölu á afurð sinni.

Af því að hv. þingmaður hóf mál sitt á að segja að hann vildi ræða grænar fjárfestingar vil ég segja að ég hef átt ágætissamtal og samstarf við álverin á Íslandi um að þau fari í auknum mæli að vinna að því að verða kolefnishlutlaus. Það liggur alveg fyrir að á þeim stað sem við erum núna, þar sem við erum búin að setja okkur mjög metnaðarfull markmið um samdrátt í gróðurhúsalofttegundum, skiptir máli að við drögum úr losun. Hluti af því er það sem við höfum verið að gera með orkuskiptum í samgöngum og þar sem því verður við komið. Þar er tækifæri þótt við séum á mjög góðum stað hvað það varðar að vegna orkunnar sem við eigum þá getum við nýtt endurnýjanlega orkugjafa í mjög margt sem önnur ríki hafa ekki getað gert.

Þá skiptir líka máli að við bindum kolefnið sem við losum. Í fyrra undirrituðum við viljayfirlýsingu, m.a. ásamt Norðuráli, um að nú myndum við sameiginlega vinna að markmiðinu um kolefnishlutleysi. Það getum við auðvitað gert, annars vegar með breyttum framleiðsluháttum, og ég tel að þetta fyrirtæki hafi sýnt vilja til þess, og hins vegar með aukinni bindingu kolefnis. Það vekur kannski mesta athygli þegar rætt er um loftslagsmál á alþjóðavísu. Hv. þingmaður vísaði hér í hinn alþjóðasinnaða flokk sem hann tilheyrir. Hann þekkir þá þessa umræðu. Við getum lagt mikið af mörkum og höfum margt fram að færa í því sem við höfum verið að gera hér, til að mynda uppi á Hellisheiði með kolefnisbindingarverkefni. Ég held að það sem ég hef kannski einna helst (Forseti hringir.) rætt við þetta fyrirtæki og fleiri í sama geira, sé hvernig þau geti (Forseti hringir.) í raun og veru náð markmiðinu um kolefnishlutleysi með okkur.