151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[16:25]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér álitsgerð Páls Hreinssonar um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarna. Álitsgerðin er unnin að beiðni forsætisráðherra sem óskaði eftir því við að hún yrði tekin saman með hliðsjón af skráðum og óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttar og mannréttindaákvæða í stjórnarskrá og alþjóðasamningum. Þá óskaði hæstv. forsætisráðherra einnig eftir því að gerðar yrðu frumtillögur að breytingum á lögum eða reglum, eftir því sem höfundur álitsgerðar teldi tilefni til.

Í formála álitsgerðarinnar kemur fram að um fræðilega umfjöllun er að ræða um gangverk sóttvarnalaga í ljósi stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar. Höfundur tekur fram að ekki er um tæmandi úttekt að ræða enda var tíminn sem ætlaður var til vinnunnar skammur. Fjallað er á almennan hátt um nokkur meginatriði sem þýðingu hafa þegar teknar eru ákvarðanir um opinberar sóttvarnaráðstafanir.

Ég vil nota tækifærið og þakka dr. Páli Hreinssyni fyrir góða vinnu við þetta mikilvæga innlegg og hæstv. forsætisráðherra fyrir að koma þessu af stað og nú til þingsins. Það mál sem við ræðum nú er líklega stærsta mál samtímans. Það snertir alla á einhvern hátt, ekki bara óbeint heldur beint. Við höfum öll þurft að aðlaga okkur breyttum háttum og tileinka okkur ýmislegt sem ekki var hluti af daglegu lífi, eins og að gæta að fjarlægðarmörkum, tíðari handþvotti, sprittun og grímunotkun.

Við erum að upplifa veruleika sem á liðnum vetri og í vor virtist tímabundinn en nú má segja að hann sé viðvarandi, eða þar til annað kemur í ljós, enda er komin þreyta í mannskapinn og hærri gagnrýnisraddir heyrast nú en í upphafi faraldursins. Það er fullkomlega eðlilegt því að langvarandi skerðing á frelsi til daglegra athafna tekur á. Í raun hafa yfirvöld kallaði eftir umræðu, ekki síst sóttvarnalæknir sem aldrei hefur haldið því fram að hann þekki alltaf allt í þeim nýja vágesti sem veiran er.

Nú er umræðan komin hingað inn í þingið. Sumum þykir það vonum seinna. Ýmislegt má rýna til gagns og velta fyrir sér, eins og því hvort ekki hefðu fleiri mátt koma að ákvarðanatöku og fyrr í ferlinu. Var nægileg upplýsingagjöf til stjórnarandstöðu? Þau segja ekki. Mátti kalla fleiri að borðinu, og þá er ég að meina fulltrúa hinna ýmsu hópa og starfsstétta, eða var það of snúið? Lýðræðið er snúið en það á líka að vera það.

Mikil umræða hefur farið fram í fjölmiðlum, á prenti og í netheimum. Á nokkrum vikum höfum við lært margt um nýjan óvin sem kemur utan frá. Og það reynir á hvernig við tökum á málum innan frá. Við stöndum frammi fyrir ógn sem við höfum ekki rætt mikið um fram að þessu, eðlilega. Það hefur ekki verið tilefni til. Aftur á móti höfum við rætt um ógnir sem stafa af hryðjuverkum og árásum af öðrum toga, flest eitthvað sem má sjá með berum augum. Þess vegna er mikilvægt að ræða ástandið sem við búum við núna og rýna þessa álitsgerð. Fyrst verð ég að segja að samkvæmt henni erum við í langflestum tilvikum innan heimilda sóttvarnalaga. Í ljós hafa komið gallar en þá má laga. Næst verð ég að segja að það er og var skynsamlegt að byggja ákvarðanir á vísindum, treysta á okkar besta fólk, hlusta á það, fara að ráðum þess. Ekki má láta dægurumræðu og tilfinningar ráða för í svo stóru máli.

Annað sem hefur skýrst er að valdsvið sóttvarnayfirvalda er meira en mörg okkar gerðu sér grein fyrir. Í lögum um sóttvarnir kemur fram að hlutverk sóttvarnalæknis sé m.a. að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um allt land, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum. Þetta hlutverk er túlkunaratriði því að sóttvarnalæknir fer ekki með vald til að setja reglugerðir og mæla fyrir um opinberar sóttvarnaráðstafanir, eins og segir í álitsgerðinni. Viðbrögð hans þurfa því að taka mið af reglugerðum og öðrum gildandi réttarheimildum um sóttvarnir á hverjum tíma en það er á valdsviði ráðherra að koma opinberum sóttvörnum í framkvæmd. Áður en heilbrigðisráðherra gefur út reglugerð um opinberar sóttvarnir skal sóttvarnalæknir samkvæmt lögum hafa komið fram með skriflegar og rökstuddar tillögur um slíkar ráðstafanir. Eins segir að við embætti landlæknis skuli starfa sóttvarnalæknir sem ber ábyrgð á sóttvörnum. Hann skuli hafa þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra. Af þessu leiðir að tillögur sóttvarnalæknis eiga að byggjast á viðurkenndri læknisfræðilegri þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra. Þannig gerum við kröfu um að ávallt sé byggt á nýjustu þekkingu hverju sinni.

Þetta sýnist mér hafa gengið eftir. Okkar ágæta þríeyki hefur staðið vaktina með prýði, lagt gott til og verið uppbyggilegt. Aldrei hafa þau þóst vita allt því að það er ekki hægt. En ákvarðanir hafa verið byggðar á bestu vitneskju á hverjum tíma. Við erum í lærdómsferli og það er mikilvægt að hlusta um leið og ákvarðanir eru teknar, oft á flóknum grunni. Nú þegar við öll vitum meira er rétt að Alþingi taki málið upp og hugi að breytingum sem bæta og styrkja sóttvarnalög. Ekki má gleyma eftirlitshlutverki löggjafans sem hlýtur að vera jafn mikilvægt nú og alltaf.

Fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafa komið sérfræðingar. Hjá þeim kom fram að það er hlutverk Alþingis að setja almennar reglur sem gilda um aðstæður eftir því sem þær koma upp og gera stjórnvöldum kleift að bregðast við eftir því sem þarf. Það virðist vera almenn skoðun að stjórnvöld séu að sinna skyldu sinni til að vernda líf og heilsu borgaranna. Það er mikilvægur grunnur sem við getum verið sammála um að skoða þurfi í framhaldi og hvernig við tökumst á við það.

Þegar valdheimildir til opinberra sóttvarnaráðstafana eru metnar þarf að vega saman mannréttindi einstaklinga og athafnafrelsi borgara annars vegar og hins vegar frumkvæðisskyldu stjórnvalda til að halda niðri faraldri og vá. Hversu langt má ganga? Um það erum við ekki sammála en mikilvægt er að beita meðalhófssjónarmiðum þegar teknar eru ákvarðanir um sóttvarnaráðstafanir. Í því ljósi er mikilvægt að byggja allar ákvarðanir á bestu þekkingu hverju sinni. Því er það skylda yfirvalda að breyta ráðstöfunum eftir því sem þekking eykst á sjúkdómnum og árangri ráðstafana. Rannsóknarregla leggur þá skyldu á sóttvarnayfirvöld að meta jafnóðum upplýsingar og þekkingu um sjúkdóminn, áhrif sóttvarnaráðstafana sem þegar hefur verið farið í og hugsanleg áhrif og tjón af setningu reglugerða. Þess vegna getur stöðugt þurft að gera breytingar á ráðstöfunum.

Erfitt er að setja lög, og í raun ekki hægt, sem lýsa öllu út í hörgul. Stjórnvöld verða að geta brugðist hratt við. Þegar sóttvarnaráðstafanir breytast vegna reynslu og þekkingar þarf að rökstyðja það. Hóflegar ráðstafanir á hverjum tíma ráðast af upplýsingum. Velja þarf úrræði og ekki ganga lengra en þarf, gæta að meðalhófsreglu, stunda viðvarandi og stöðuga skoðun á því hvort verið sé að beita vægustu ráðstöfunum til að ná árangri við að vernda heilsu almennings miðað við aðstæður hverju sinni, enda hvílir sú skylda á stjórnvöldum að vernda heilsu almennings.

Hæstv. forseti. Fram hefur komið að sóttvarnir eru nær því að vera skerðing á frelsi en svipting á réttindum, eins og einhverjir halda fram. Klárlega er töluverður munur á sóttkví og einangrun. Sóttkví er vissulega takmarkandi en á engan hátt íþyngjandi á sama hátt og einangrunarvist. Ég held að það megi skoða betur. Við komum alltaf að meðalhófinu. Réttmæt markmið þurfa að vera til og lagaheimildin er til staðar í sóttvarnalögum. Sjálfsagt er að skilgreina heimildir til sóttvarnaráðstafana betur í lögum núna þegar reynt hefur á okkur í þessum efnum í fyrsta sinn á lýðveldistímanum. Jafnræðisreglan hefur þann fyrirvara og beiting hennar í þessu sambandi byggir á því að allar aðstæður séu sambærilegar. Það getur þurft að leggja meiri takmarkanir á einn hóp en annan í ljósi aðstæðna. Má þar nefna sem dæmi sveitarfélög þar sem miklar sýkingar hafa komið upp. Ef við vinnum öll að sama markmiði næst árangur, hæstv. forseti.

Ágreiningur hefur verið um gildi tilmæla, sem nokkuð hafa verið notuð, í öllu þessu ferli. Þau hafa ekki sama vægi og reglugerðir. Ég álít tilmæli góð til að höfða til samvisku fólks þannig að hver og einn geti axlað sína ábyrgð í samræmi við aðstæður. Vissulega hefur margt mátt liggja skýrar fyrir. Margir hafa verið óöruggir með hvað má og hvað ekki. En það er ekki endilega alltaf betra að beita harðari fyrirmælum. Ég álít að samvinna okkar allra skili okkur einfaldlega best áfram eins og skýrt er sett fram í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum þar sem gæskurinn og gæskan eru minnt á tveggja metra regluna. Árangur næst ef við gerum okkar besta í að fylgja tilmælum og reglum en leitum ekki að mögulegum holum, ósamræmi eða smugum í tilmælum og reglum. Öll orðræða um að tilmæli dragi úr virðingu fyrir hörðum reglum finnst mér mjög langsótt og beinlínis í andstöðu við sýn þess sem hefur trú á samvinnu við lausn aðkallandi úrlausnarefna.

Hæstv. forseti. Eins og áður hefur verið vikið að er hlutverk löggjafans að setja almenn viðmið. Það er síðan hlutverk stjórnvalda að útfæra þau í fyrirmælum í ljósi aðstæðna hverju sinni. Það væri mjög óskilvirkt ef löggjafinn þyrfti að koma að mati á fyrirmælum í hvert sinn. Eftir níu mánaða reynslu af sóttvarnaráðstöfunum, sem við erum nú komin með, væri gagnlegt að löggjafinn skýrði betur í sóttvarnalögum þær sóttvarnaráðstafanir sem mögulegt er að beita. Ekki er endilega hægt að segja að eitthvað skorti í lögin en þó gætu þau verið skýrari. Ég vil því fagna fyrirætlunum hæstv. heilbrigðisráðherra um að fara í heildarendurskoðun á sóttvarnalögum og vona ég að sú vinna komist sem fyrst af stað því að nú höfum við komið auga á ýmislegt sem betur má fara.

En það er líka mikilvægt að löggjafinn Alþingi beiti eftirlitshlutverki sínu með því að fylgjast með framkvæmd sóttvarnaráðstafana enda hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tekið málið til umfjöllunar og ekki kæmi á óvart að umboðsmaður Alþingis færi yfir framkvæmdina á einhverjum tímapunkti. Það mun örugglega reyna á Mannréttindadómstól Evrópu að þessu loknu. Því að krafan um takmarkanir á mannréttindum sem byggð er á settum lögum er talin strangari hér en annars staðar. Fyrst þurfum við að fá úrlausn dómstóla hér heima. Það er einhver tími í að þessi mál komist þangað, a.m.k. tíu ár í úrlausn. Atvinnufrelsi er ekki verndað, hugsanlega mætti sýna fram á tap á eignarréttindum. Einhverjir hafa séð fram á gósentíð lögfræðinga á næstunni og það mun þá koma í ljós.

Vissulega hafa komið fram sjónarmið um að stjórnvöld kunni í einhverjum tilfellum að ganga lengra í tilmælum og reglum en lögin leyfa. Minn skilningur er ekki sá. Stjórnvöld hafa gengið fram með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og sinnt skyldu sinni til að vernda líf og heilsu borgaranna. Aftur á móti eiga margir mjög erfitt núna. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum og við eigum eftir að sjá eftirköstin sem við verðum að reikna með að verði töluverð þegar að því kemur. Við erum ekki í nokkrum einustu færum að sjá fyrir hvernig staðan verður eftir nokkra mánuði eða ár, ekki frekar en okkur gat órað fyrir stöðunni sem uppi er núna eða séð hana fyrir í mars síðastliðnum. Það er margt sem við eigum eftir að læra, margt sem við eigum eftir að tileinka okkur og skoða betur.

Hæstv. forseti. Okkur hefur verið tíðrætt um samstöðu og mikilvægi hennar í ástandinu sem nú ríkir. Það er enginn einn í þessari glímu og líkt og oft áður sannast að við erum sterkari þegar við stöndum saman og erum meðvituð um hvert við stefnum. Samstaða er nefnilega nokkuð öflugt tæki en samstaða þýðir ekki að við þurfum að vera sammála um allt. Við verðum að gefa okkur svigrúm til samtals og tíma til að hlusta á ólík sjónarmið og gera okkur grein fyrir því að við erum öll ólík. En við þurfum líka stundum að bregðast hratt við. Þá megum við ekki missa sjónar á markmiðinu því að það er okkur öllum mikilvægt að verja okkar viðkvæmustu hópa og halda vel utan um þá. Áfram verðum við ósammála um hve langt á að ganga í hinum ýmsu aðgerðum en öll vitum við að það sem við gerum hvert og eitt skiptir máli. Nú reynir á þolgæði okkar og þrautseigju. Sameiginlega ráðum við við verkefnið. Ég hef nefnilega trú á því að allir séu að gera sitt besta á hverjum tíma og betur verður ekki gert.

Það segir samt ekki að ég sé laus við áhyggjur af ástandinu. Það eru ákveðnir hópar sem ég hef þungar áhyggjur af. Ég hef áhyggjur af ungmennunum okkar sem flest hver eru í fjarnámi. Það hentar ekki öllum. Það er snúið. Það er erfitt að eiga við það. Þau fá ekki að upplifa það sem við hér inni í þessum sal fengum t.d. að upplifa við upphaf framhaldsskólagöngu og við lok grunnskólagöngu. Það er kannski ekki það hættulegasta í lífinu en það er kannski hættulegt þegar vantar upp á félagsþroska, samskiptin og annað slíkt. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við leggjumst nú öll á eitt og klárum þetta verkefni. Það skiptir máli hvað hver og einn gerir. Við vitum miklu betur núna og svo komum við aftur saman seinna og ræðum málin betur. Þegar frá líður sjáum við stóru myndina og það verður svo sannarlega lærdómur sem við getum tekið út úr þessu öllu saman. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu því að upplýst umræða er alltaf af hinu góða.