151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[17:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Frú forseti. Í þeirri grunnstefnu sem Píratar leggja áherslu á tölum við mikið um eflingu og verndun borgararéttinda, að standa þurfi vörð um núverandi réttindi og gæta þess að þau séu ekki skert. Píratar telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum og að réttur hvers og eins sé jafn sterkur. Það eru ótal sögulegar ástæður fyrir því að mikilvægi borgararéttinda er það sem það er.

Við krefjandi aðstæður í samfélaginu sem kalla á afgerandi aðgerðir af hálfu stjórnvalda þarf að huga að ýmsu. Valdi fylgir ábyrgð. Í upphafi árs stóðum við í fyrsta skipti í langan tíma frammi fyrir farsótt sem hefði getað kostað hundruð eða jafnvel þúsundir lífið miðað við fyrstu spár. Hún kallaði á harðar aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að standa vörð um líf og heilsu landsmanna. Um var að ræða aðgerðir sem skertu frelsi borgaranna með mjög afgerandi hætti. Sum misstu aðgang að þjónustu sem þau reiða sig á. Sum þurftu að loka fyrirtækjum sínum og misstu atvinnuna. Sum gátu ekki heimsótt ástvini sína. Fresta þurfti brúðkaupum og halda þurfti jarðarfarir fyrir lokuðum dyrum í beinu streymi. Einungis þeir sem hafa þá reynslu að hafa þurft að sækja jarðarfarir í þessu ástandi geta sagt hversu slæmt það er, eins erfiðar og jarðarfarir eru fyrir. Margar þessara skerðinga gilda enn í dag og hafa miklar afleiðingar fyrir líf fólks. Eftir því sem við getum best séð voru þessar miklu skerðingar á athafnafrelsi og réttindum borgaranna að mestu leyti nauðsynlegar.

Þegar réttindi borgaranna eru skert með svo alvarlegum og víðtækum hætti verður að uppfylla nokkur skilyrði. Það verður að leggja mat á þau réttindi sem skerðast og þá hagsmuni sem verið er að vernda með skerðingunni. Gæta stjórnvöld meðalhófs í ákvarðanatöku? Það verður að passa að eitt gangi yfir alla. Gæta stjórnvöld jafnræðis í ákvarðanatöku? Það verður að passa að brjóta ekki mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar þegar ákveðið er að skerða réttindi fólks. Við verðum að spyrja hvort skerðingarnar rúmist innan stjórnarskrárinnar. Og síðast en ekki síst verður að rökstyðja vel og ítarlega allar ákvarðanir stjórnvalda. Það er engin leið að vita hvort passað hefur verið upp á þessa hluti ef við fáum ekki nógu góðan rökstuðning frá stjórnvöldum þegar þau taka ákvarðanir sínar. Við verðum að vita hvaða forsendur liggja að baki ákvarðanatökunni.

Hvað réð því t.d. að samkomubannið miðaðist við 20 manns en ekki 50? Hvernig komust stjórnvöld að niðurstöðu um hvernig starfi leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla yrði háttað? Hvað með háskólann? Hver voru andstæðu sjónarmiðin og hvers vegna var þeim hafnað? Svörin eiga að vera til þó að okkur finnist þau jafnvel augljós. Þetta eru hlutirnir sem þurfa að liggja fyrir þegar stjórnvöld tilkynna okkur um nýjar sóttvarnaráðstafanir.

Með því að hafa sem skýrastar forsendur og rökstuðning fyrir aðgerðum nást fram nokkrir mikilvægir hlutir. Í fyrsta lagi eykur það traust á aðgerðunum. Ef almenningur skilur ástæðurnar fyrir aðgerðunum er hann líklegri til að treysta þeim. Það eykur samstöðu og samheldni um aðgerðirnar og bætir árangur þeirra. Í öðru lagi eykur það líkurnar á að fólk skilji reglurnar og fylgi þeim. Aukinn skilningur þýðir betri eftirfylgni. Í þriðja lagi styrkir það eftirlit með aðgerðum. Ef rökstuðningur liggur fyrir er auðveldara fyrir þingið og almenning að hafa eftirlit með því að réttindi borgaranna séu ekki skert umfram það sem efni er til. Ef rökstuðningurinn er óskýr vakna fleiri spurningar og meiri efasemdir verða um ákvarðanir stjórnvalda.

Það hefur því miður stundum verið misbrestur á því að rökstuðningurinn fyrir aðgerðunum sé skýr. Að sumu leyti skiljanlega því að aðstæður eru eins og þær eru. En þegar kemur að afgerandi aðgerðum verður að vera afgerandi krafa um að forsendur og rökstuðningur liggi fyrir. Það sem allir héldu að væru reglur urðu t.d. allt í einu að viðmiðum, ekki tveggja metra regla heldur tveggja metra viðmið, þegar ráðherra var á ljósmynd. Það er áhugavert að í nýlegu minnisblaði sóttvarnalæknis, sem sent var við upphaf þriðju bylgju faraldursins í ágúst, var að finna talsvert ítarlega yfirferð yfir mögulegar aðgerðir í stað þess að lagðar væru til tilteknar aðgerðir. Þetta er allt þróast í rétta átt, að því er virðist, en krafan er sú sama.

Hvað varðar baráttuna gegn Covid-19 er enn langt í land. Við munum mögulega búa við einhvers konar sóttvarnaaðgerðir jafnvel í ár í viðbót. Við verðum að gæta að því að standa vörð um samstöðu um aðgerðir því að langvarandi takmarkanir á frelsi einstaklinga hafa óumflýjanlega í för með sér mikla þreytu, hún er kölluð faraldursþreyta og er þekkt. Það getur leitt til þess að aðgerðirnar hætti að skila árangri og að í framhaldinu sé þá gripið til enn harðari aðgerða. Það er vítahringur sem við viljum ekki festast í. Ef við viljum forðast þann vítahring er nauðsynlegt að standa vörð um samheldni samfélagsins um aðgerðirnar. Til að það megi verða þurfa þær að vera skýrar og vel rökstuddar þannig að réttindi einstaklinga og frelsi þeirra sé ekki skert meira en þarf til að ná tilætluðum árangri í sóttvörnum til að standa vörð um líf og heilsu almennings.