151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[18:25]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Þetta hefur verið mjög áhugaverð umræða í dag og mikilvæg. Sérstök ástæða er til að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að kalla eftir þessari skýrslu og kalla eftir umræðu um hana. Ég geri í raun ekki neinn ágreining um niðurstöður í skýrslu Páls Hreinssonar. Ég hef hvorki lagalegar forsendur til þess né nokkra aðra þá þekkingu sem gæti vefengt hana. Við höfum verið að verja almannahag og aðgerðirnar hafa svo sannarlega skipt máli. Enginn vafi er á því í mínum huga. Auðvitað getum við aldrei sett fingurinn á það eða tölu á það nákvæmlega hvað við höfum bjargað mörgum mannslífum, hvað við höfum forðað mörgum smitum o.s.frv. Það munum við aldrei geta. En í mínum huga er enginn vafi á að þarna höfum við náð miklum árangri.

Það er rétt að taka undir það með hæstv. heilbrigðisráðherra að það eru einmitt almennar aðgerðir einstaklinganna, okkar persónulegu sóttvarnir, grímur, sótthreinsun, handþvottur, nálægð, sem hafa skipt máli. Í því sambandi er kannski ástæða til að vitna í 7. gr. sóttvarnalaga þar sem segir, með leyfi forseta:

„Það er almenn skylda að gjalda sem mesta varúð við smitsjúkdómum og gera sér allt far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra, að svo miklu leyti sem framkvæmanlegt er.“

Þetta ákvæði er svo sannarlega í lögum. Ég tel að við höfum farið inn í þennan faraldur með tiltölulega litla þekkingu en við erum að auka hana. Það hefur gengið vel. En ég er alls ekki sammála því, sem hefur komið fram í ræðum nokkurra þingmanna, að við höfum verið óundirbúin. Ég er algerlega ósammála því. Engum blöðum er um það að fletta að heilbrigðiskerfið hefði farið algjörlega á hliðina, við hefðum algerlega „klúðrað“ þessum faraldri, ef við hefðum verið óundirbúin. Það er því bara rangt að við höfum verið óundirbúin. Ég held raunar að sú vinna sem var unnin í kringum svínaflensufaraldurinn 2009, að mig minnir, og HABL-faraldurinn 2003 hafi þarna skipt verulegu máli. Menn voru undirbúnir, menn vissu hvaða skref þeir áttu að stíga.

Þetta er einstæður atburður. Aldrei áður hefur reynt á sóttvarnalög í þeim mæli sem gerir nú. Þess vegna leiðir af sjálfu að nú á næstu vikum og mánuðum er einmitt tíminn til að fara að skoða sóttvarnalögin betur. Við þurfum að spyrja: Hvar þurfum við að herða hnúta, hvar þurfum við að skrúfa skrúfur o.s.frv.? Það er núna og ég tek undir með þeim þingmönnum sem hafa komið inn á það.

Ég tek ekki undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað um að að einhverju leyti sé verið að herða sóttvarnaaðgerðir á vitlausum tíma. Ég er engan veginn sammála því. Faraldurinn er í vexti. Í gær voru yfir 400.000 smit á heimsvísu. Ef það eru ekki nógu skýr skilaboð til okkar um að halda sjó, og halda áfram aðgerðum eins og þær eru, þá veit ég ekki hvenær þau skilaboð koma. Ég tek undir það, sem komið hefur fram í máli margra þingmanna hér í dag, að við höfum farið fram af miklu meðalhófi og ég tel að við eigum að halda því áfram. En við verðum samt alltaf að muna til hvers við erum að þessu. Við erum að vernda líf og heilsu landsmanna. Það er grundvallarmálið.