málefni öryrkja.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir að vekja hér máls á kjörum þeirra sem höllustum fæti standa í samfélaginu. Hann vitnaði í orð mín 2017 sem ég stend enn þá við, enda hafa fjölmargar aðgerðir ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili endurspeglað nákvæmlega þessa áherslu, aðgerðir sem hv. þingmaður hefur stutt hér í þessum sal, eðlilega. Þá vil ég sérstaklega nefna breytingar á tekjuskattskerfinu þar sem ráðist var í aðgerðir sem koma hinum tekjulægstu best. Ég vil tala um hækkun barnabóta sem skiptir verulegu máli, sérstaklega fyrir tekjulágar barnafjölskyldur, þar sem dregið var úr skerðingunni króna á móti krónu í sérstakri framfærsluuppbót og til þess varið 2,5 milljörðum að frumkvæði hæstv. félags- og barnamálaráðherra, þar sem gripið hefur verið til sérstaks félagslegs viðbótarstuðnings við þá í hópi aldraðra sem höllustum fæti standa, þar sem ráðist hefur verið í að draga mjög markvisst úr kostnaði fólks í heilbrigðiskerfinu, öryrkja, aldraðra, barna. Og hæstv. heilbrigðisráðherra sté löngu tímabært skref í að draga úr tannlæknakostnaði sem hv. þingmaður, eins og ég, var spurður að fyrir síðustu kosningar og svaraði að hann vildi stíga stór skref.
Það er alveg óhætt að segja að það hafa verið stigin mörg mikilvæg skref til þess að efla velferðina í þessu samfélagi og auka jöfnuð.
Ég kannast ekki við það þegar hv. þingmaður ræðir hér að hæstv. fjármálaráðherra hafi haft í hótunum. Það tel ég ekki vera. Ég er ekki sammála hv. þingmanni um að þannig eigi að skilja orð hæstv. ráðherra sem benti hins vegar á að framlög til þessa málaflokks hafa vaxið jafnt og þétt á síðustu árum, ekki síst þegar ráðist var í breytingar á almannatryggingakerfinu sem vissulega átti fyrst og fremst við eldri borgara. Þá er ég að vísa í breytingarnar 2016, sem við höfum oft rætt hér, en sömuleiðis vegna fjölgunar í þessum hópi.