151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:26]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Vitaskuld er allur skilningur á því að í aðstæðum sem þessum, sér í lagi hvað varðar viðbrögð og aðgerðir sóttvarnalæknis, þar sem stöðugt er verið að bregðast við og aðgerðir eru taldar í dögum og í mesta lagi í vikum, þarf að vera sveigjanleiki til að ráðherra geti sinnt starfi sínu. Það breytir því ekki hversu gagnlegt og nauðsynlegt það er að við eigum þetta samtal á þingi, enda þótt það gerist þá í kjölfarið, um forsendurnar, um sviðsmyndirnar, um aðstæðurnar þegar það kemur upp að heilbrigðisráðherra fer ekki að öllu leyti að tilmælum sóttvarnalæknis o.s.frv. Gagnsæi er algjört leiðarstef og lykilatriði í allri óvissustjórnun og það er það sem Viðreisn er að reyna að ná fram með þessu, að við fáum forsendurnar upp á yfirborðið og fáum samtalið hingað inn í þingsal, en kannski líka það að ögn meiri fyrirvari sé fyrir atvinnulífið, fyrirtækin, heimilin, foreldrana sem eru með börn í grunnskólum, mömmu og pabba á hjúkrunarheimilum o.s.frv., að það sé gagnsæi og fyrirvari og uppbyggilegt samtal.