þjónusta sérgreinalækna á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur fyrir þessa umræðu, sem er mjög mikilvæg og áhugaverð, og þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er gríðarlega mikilvægt að auka sérfræðiþjónustu lækna á landsbyggðinni. Ég og fleiri gerðum okkur vonir um að með samningum sjúkrahúsanna 2016 yrði sú þjónusta aukin allverulega. Það má kannski segja að þær vonir hafi ekki ræst en auðvitað hefur margt lagast. Fyrir landsbyggðarsjúkrahúsin fylgir kostnaður því að bjóða upp á sérfræðiþjónustu og það er umfram sjúkrahúsin hér á höfuðborgarsvæðinu. Það þarf auðvitað að skoða, og eins og fram kemur í fyrirspurninni þarf að skoða hvort rétt sé að taka það inn í fjárlögin.
Sjálfstætt starfandi sérfræðingum þarf að vera gert kleift að koma út á landsbyggðina og sjúkrahúsum að taka á móti þeim. Það er til stórbóta fyrir allt og alla. Heilbrigðisstofnanir þurfa líka að leggja meiri rækt við að bjóða upp á aukna þjónustu. Í velferðarnefnd fengum við heimsóknir frá sjúkrahúsum alls staðar á landsbyggðinni í janúar og þar kom fram að þrátt fyrir þröngan fjárhag margra þá eru margar stofnanir að bæta í og auka þjónustu við íbúa. Blóðskilun er orðin algengari á landsbyggðinni en áður og er mikilvægur þáttur fyrir þá sjúklinga sem á slíkri þjónustu þurfa að halda. Það minnkar ferðir og kostnað og eykur lífsgæði þeirra verulega. Þó hafa auðvitað ekki allar stofnanir séð sér fært að veita slíka þjónustu vegna þess að hún kostar mannafla og sérþekkingu sem Landspítalinn er tilbúinn að veita og heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni er velkomið á Landspítalann að læra þá þjónustu.
Ég vil bara ítreka að ég þakka fyrir þessa umræðu. Hún er þörf og mikilvæg.