151. löggjafarþing — 38. fundur,  15. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

20. mál
[14:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál og ég tek undir það sem sagt hefur verið. Það er kannski ástæðan fyrir því að við komum svo mörg hér upp og lýsum stuðningi okkar við málið að fjölmiðlaumfjöllunin í gær var með einhverjum allt öðrum hætti. Þetta er frelsismál, þetta er risastórt mannréttindamál og snýr að réttindum barna og ég styð þetta heils hugar.