151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

sóttvarnalög.

329. mál
[15:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýrt og greinargott svar hvað þetta varðar. Þá liggur það fyrir hér úr ræðustól Alþingis. Einhverjir hafa haft áhyggjur af því að það væri verið að heimila það að setja einhvers konar flögu undir húð en það á alls ekki við nein rök að styðjast og gott að fá það skýrt fram vegna þess að ég veit að það hefur þó nokkuð verið um að fólk hafi haft áhyggjur af því. En hv. þingmaður skýrði þetta mjög vel út og ég þakka honum fyrir það þannig að það er eitthvað sem fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af.