151. löggjafarþing — 67. fundur,  16. mars 2021.

OC fyrir ÞSÆ.

[13:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Olga Margrét Cilia, 1. varamaður á lista Pírata í Reykv. s., hafi tekið sæti á Alþingi laugardaginn 13. mars sem varamaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og vék þá 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Katla Hólm Þórhildardóttir, af þingi.

Olga Margrét Cilia hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.