151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

ávana- og fíkniefni.

714. mál
[18:28]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar mig að spyrja hv. þingmann, í ljósi þessarar ræðu, frekar einfaldrar spurningar: Burt séð frá þessu frumvarpi, er hv. þingmaður þeirrar skoðunar að það eigi að vera refsingar fyrir vörslu á neysluskömmtum?