151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .

373. mál
[14:16]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar að í þessu frumvarpi séu stigin mikilvæg skref. Frumvarpið er ekki fullkomið. Það hefði e.t.v. mátt vinna betur en þegar allt er skoðað tel ég að það sé til bóta og þess vegna mun ég styðja frumvarpið í þeirri mynd sem það er lagt fram.