151. löggjafarþing — 103. fundur,  31. maí 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[14:07]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Samfylkingin leggur hér til breytingar á fjármálaáætlun til að efla löggæslu á Íslandi. Rétt í þessu sendi stjórn Landssambands lögreglumanna frá sér yfirlýsingu þar sem hún lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem lögreglan stendur frammi fyrir. Allt of fáir lögreglumenn eru við störf og hlutfall lærðra lögreglumanna er hættulega lágt. Ljóst er að eftir að stytting vinnuvikunnar tók gildi þann 1. maí sl. hefur staða löggæslu á Íslandi versnað til muna og þrátt fyrir loforð og samninga um annað hafa lögregluembætti landsins ekki fengið fjármagn frá ríkisvaldinu til að ráða viðbótarmannskap. Það hefur í för með sér að færri lögreglumenn eru á vakt hverju sinni og dregur það ástand verulega úr öryggi lögreglumanna og almennings. Með því að samþykkja tillögu Samfylkingarinnar hér aukum við öryggi almennings í landinu sem og lögreglumanna.