152. löggjafarþing — 3. fundur, 2. des. 2021.
um fundarstjórn.
Forseti hefur heyrt þær athugasemdir sem komið hafa fram af hálfu hv. þingmanna vegna umsagnarbeiðni sem send var út af hálfu formanns fjárlaganefndar. Forseti áréttar að það er mikilvægt að nefndir fari eftir starfsreglum nefnda og ákvæðum þingskapa í störfum sínum og telur að þetta dæmi eigi að vera ákveðinn lærdómur fyrir nefndarformenn og nefndarmenn alla að haga vinnubrögðum í samræmi við starfsreglur og ákvæði þingskapa.