152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:56]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir hennar andsvar. Já, ég hef orðið var við vilja fráfarandi ríkisstjórnar til að skoða Suðurnesin sem vaxtarsvæði. Vinna var farin af stað, og þarna er kannski ekki bara um Suðurnesin að ræða heldur einnig vaxtarsvæði almennt, eins og Árborgarsvæðið, við að skoða þau svæði sérstaklega og sú vinna var farin í gang áður en Covid skall á. Reykjanesbær gerði á sínum tíma skýrslu um þær fjárveitingar sem koma frá ríkinu til Suðurnesja og þar kom í ljós að þær voru miklu minni en við áttum rétt á. Í framhaldi af því var farið í þessa vinnu. Nefndin breyttist síðan í Covid-nefnd og einhvers konar bjargráðanefnd. Vonandi fer hún af stað aftur til að vinna með Suðurnesin sem vaxtarsvæði, því að það eru verulegar áskoranir sem vaxtarsvæði standa frammi fyrir. Það er mikill tilflutningur á fólki sem þarf alls konar þjónustu, mikil innviðauppbygging sem þarf að eiga sér stað og sveitarfélög á vaxtarsvæðum eiga fullt í fangi með að sinna skyldum sínum hvað það varðar.