fjárlög 2022.
Frú forseti. Fyrir réttu ári síðan vorum við Íslendingar í dýpstu kreppu sem við höfum séð í áraraðir og mesta samdrætti í ein 100 ár. Fyrir réttu ári síðan var algjört hrun í afkomu ríkissjóðs. Óvissan var gríðarleg í efnahagsmálum og atvinnuleysi náði nýjum hæðum. Það er því gleðiefni að sjá það hér í þessu fjárlagafrumvarpi að staða ríkissjóðs er talsvert betri á þessum tímapunkti en menn þorðu að vona og staðan er nokkuð sterk á alþjóðlegan mælikvarða. Hagkerfið er farið af stað og því ber að sjálfsögðu að fagna. Það eru bjartari horfur nú í efnahagsmálum en þegar síðasta fjárlagafrumvarp var lagt fram. Veirufaraldurinn hefur farið betur með efnahagslífið en margir þorðu að vona. Hagstofa Íslands hefur gefið út þjóðhagsspá, sem er forsenda fjárlagafrumvarpsins og fjármálastefnu. Þar kemur fram að það sé kraftmikill hagvöxtur fram undan. Það er sem sagt spáð hagvexti á næsta ári, að hann verði um 5,3%, en að hann sé drifinn af auknum útflutningi og einkaneyslu. Við vonum að sjálfsögðu að það gangi eftir.
Spá Hagstofunnar er nokkuð í takti við nýlega hagspá Seðlabanka Íslands. Það eru góð tíðindi og mjög jákvætt innlegg í ríkisfjármálin og fyrir heimilin í landinu. Viðbrögð skuldabréfamarkaðarins eru ágætismælikvarði á það hvernig hann lítur á frumvarpið. Þau eru jákvæð og það eru mikilvæg skilaboð.
Í tilkynningu á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir að með öflugum viðsnúningi hagkerfisins stefni í að skuldastaða ríkisins verði mun betri. Horfur eru á að skuldir verði um 200 milljörðum kr. lægri undir lok næsta árs en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun og nemi um 34% af vergri landsframleiðslu í stað 42%. Í alþjóðlegum samanburði er 34% skuldahlutfall ekki há tala. Sem dæmi má nefna að á Ítalíu er skuldahlutfallið um þessar mundir 156%. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áætlar að opinberar skuldir sem hlutfall af landsframleiðslu aukist um 17,8% í vestrænum ríkjum vegna veirufaraldursins. Skuldir hækkuðu mest í Bandaríkjunum, Spáni, Bretlandi og Kanada. Á Íslandi var hækkunin minni hjá flestum öðrum þjóðum og eru skuldirnar vel undir meðallagi vestrænna ríkja á komandi árum. Það er að sjálfsögðu mjög jákvætt. Áætlar sjóðurinn að skuldir ríkissjóðs hækki um 9,7% vegna heimsfaraldurs. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki beinar tillögur um hvert umfang opinberra skulda ætti að vera og telur sjóðurinn ekki endilega vera tilefni til niðurskurðar. Það er að sjálfsögðu jákvætt. Að lokum spáir sjóðurinn í nýlegri skýrslu sinni að afkoma hins opinbera verði umtalsvert betri á Íslandi en í öðrum vestrænum ríkjum á árunum 2023–2026.
Ef við víkjum aftur að fjárlagafrumvarpinu þá kemur þar fram að afkoma ríkissjóðs batnar um 120 milljarða kr. milli þessa árs og næsta og útlit er fyrir að tekjur ríkissjóðs verði 66 milljörðum hærri árið 2022 en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun síðastliðið vor. Ríkissjóður verður, eins og komið hefur fram, rekinn með 169 milljarða kr. halla á næsta ári samkvæmt frumvarpinu. Áður var gert ráð fyrir rúmlega 200 milljarða halla. Ekki verður þó sagt að það sé mikið auka svigrúm til að fara í mikla útgjaldaaukningu enda er nauðsynlegt að fara varlega í útgjaldaaukningu þar sem það kemur niður á kaupmætti og mun auka verðbólgu ef útgjaldaaukning verður of mikil.
Ríkisfjármálin verða að styðja við peningamálastefnuna og peningamálastefnu Seðlabankans og fela í sér aðhald. Það hefur ekki farið fram hjá okkur að peningastefnunefnd hefur verið að hækka vexti. Sem fyrr verður að viðhalda aga í ríkisfjármálunum og fylgjast vel með stöðunni, sérstaklega ef forsendur breytast. Ég tek undir það með hæstv. fjármálaráðherra að það er viðvarandi verkefni að bæta stöðu ríkissjóðs. Nú er gert ráð fyrir að landsframleiðslan verði 110 milljörðum hærri á næsta ári en spáð var fyrir ári síðan og betri efnahagshorfur skila sér í mun betri afkomuspá fyrir ríkissjóð. Landsframleiðsla er jafnvel meiri en í bjartsýnni sviðsmynd úr fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025, sem kynnt var fyrir ári síðan.
Frú forseti. Næst vil ég aðeins víkja að einstökum málaflokkum í frumvarpinu. Það er þó af mörgu að taka og maður hefur ekki náð að kynna sér allt í þessum efnum. En mig langar til að koma sérstaklega inn á málefni eldri borgara. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í ræðu sinni hér að það væri forgangsmál að bæta kjör lífeyrisþega. Þetta eru mjög mikilvæg skilaboð til ört stækkandi þjóðfélagshóps. Fólk sem er 67 ára og eldra er nú um 45.000 og 10.000–15.000 manns stefna hraðbyri inn í þennan hóp. Við erum því að tala um a.m.k. 60.000 manns sem hafa beina hagsmuni af stefnu stjórnvalda. Það eru mjög ánægjuleg tíðindi að það á að einfalda örorkulífeyriskerfið og draga úr tekjutengingum. Um áramótin verður sérstök hækkun upp á 1% á bótum til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til viðbótar við almennar prósentuhækkanir almannatrygginga í fjárlögum 2022. Um 800 millj. kr. verður varið til að bæta til að hækka bætur örorku- og ellilífeyrisþega í komandi fjárlögum.
Ég fagna þessu sérstaklega og því að endurskoða á örorkubótakerfið og réttindakerfi ellilífeyrisþega. Þeim fjölgar í hópi eldri borgara sem hafa áhyggjur af fjárhag sínum. Það hefur m.a. komið fram í könnun sem Reykjavíkurborg, velferðarráðuneytið og Landssamband eldri borgara létu gera fyrir fjórum árum síðan. Á fundi fjárlaganefndar fyrir tveimur árum kom Félag eldri borgara með vandaðar tillögur um hvernig bæta mætti kjör þeirra verst settu sem tilheyra þessum hópi og fyrir þær tillögur ber að þakka. Þær eru raunhæfar og mikilvægt er að til þeirra verið horft í endurskoðuninni sem er fram undan.
Ég minni einnig á að á vormánuðum 2019 skipaði félagsmálaráðherra starfshóp sem fjallaði um kjör aldraðra til að fá betri yfirsýn yfir ólíkar aðstæður sem eldri borgarar búa við og gera tillögur um hvernig bæta megi kjör þeirra verst settu. Félag eldri borgara hafði frumkvæði að því að starfshópurinn var skipaður. Og svo það sé sagt hér þá er búin að fara fram ákveðin vinna í þessum efnum sem mikilvægt er að nýta. Samkvæmt tölum frá OECD rennur lægra hlutfall af þjóðarframleiðslu og launum á Íslandi til greiðslu ellilífeyris en í löndum eins og Bretlandi, Hollandi, Danmörku og Svíþjóð. Íslendingar fara almennt síðar á lífeyri en íbúar annarra landa og munar miklu hvað atvinnuþátttaka aldraðra er meiri og lengri á Íslandi en í hinum löndunum. Atvinnuþátttaka 65–69 ára hér á landi er rúm 50% en í sama aldurshópi í Svíþjóð er atvinnuþátttaka einungis um 20%.
Samanburður við áðurnefnd lönd sýnir að Ísland sker sig úr hvað varðar virkan lífeyristökualdur. Íslendingar hefja að jafnaði töku lífeyris einu til tveimur árum eftir að opinberum lífeyristökualdri er náð. En í hinum löndunum fjórum fer fólk að jafnaði á lífeyri nokkru áður en opinberum aldursmörkum er náð. Íslendingar taka því að jafnaði lífeyri í mun færri ár en tíðkast í hinum löndunum og útgreiðsla úr báðum hlutum lífeyriskerfisins hefst því að jafnaði síðar hér á landi. Meðalaldur íslensku þjóðarinnar er lægri og því er lífeyrisbyrði opinbera kerfisins enn mjög lág í samanburði. Þetta undirstrikar að stjórnvöld hafa ráðrúm til að gera vel við eldri borgara. Þetta er sú kynslóð sem við eigum það mest að þakka að hér ríkir almenn velferð, kynslóð sem braust úr viðjum fátæktar með vinnusemi og dugnaði, kynslóð sem í dag biður einungis um réttlæti og að fá að lifa við mannsæmandi kjör.
Herra forseti. Það er ákaflega mikilvægt í mínum huga að horft verði til þessara þátta í þeirri áður boðuðu endurskoðun á lífeyriskerfinu og ellilífeyriskerfinu. Í frumvarpinu kemur fram að frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega verði hækkað í 200.000 kr. á mánuði núna um áramótin og mun þar með tvöfaldast og verða 2,4 milljónir á ári. Þetta er mikilvægt skref í rétta átt og ég fagna því. Einstaklingur sem er 67 ára eða eldri, sem vill bæta hag sinn með vinnu, má þá hafa 200.000 kr. á mánuði áður en ellilífeyririnn er skertur. Í frumvarpinu segir að kostnaðurinn sé áætlaður um 540 millj. kr. Ég tel reyndar að hann sé töluvert lægri vegna þess að skatttekjur ríkissjóðs aukast með aukinni atvinnuþátttöku og að beinir skattar auk veltuskatta muni vega upp kostnaðinn.
Formaður Landssambands eldri borgara hefur sagt í fjölmiðlum hvað varðar þessa tvöföldun frítekjumarksins að það séu tiltölulega fáir sem geta nýtt sér hana. Hann segir stóran hluta lífeyrisþega lifa á tekjum undir lágmarkslaunum. Það er að sjálfsögðu óásættanlegt og eitt af því sem fara verður vel yfir í fyrirhugaðri endurskoðun á réttindakerfi lífeyrisþega. Formaðurinn hefur einnig sagt að það sé stór hluti sem ekki nýtir sér þennan atvinnuteknaafslátt. Hann segir að það séu miklu fleiri sem geti nýtt sér frítekjumörk lífeyristekna. Ég held reyndar að það sé alveg rétt hjá formanninum, það er verkefni sem þarf að ráðast í og sem horfa verður á í vinnunni sem er fram undan. Hafa ber í huga í þessu sambandi að kannanir meðal eldri borgara hafa sýnt að nær öllum, eða 97%, finnst að auðvelda ætti þeim sem komnir eru á lífeyrisaldur að vera virkir á atvinnumarkaðnum. Atvinnuþátttaka eldri borgara færir þeim aukna virkni í samfélaginu. Aukin virkni stuðlar að vellíðan og lífsánægju og því virkara sem eldra fólk er því meiri lífsgleði upplifir það. Stjórnvöld og þingheimur allur verður að vera meðvitaður um það. Við verðum að vera meðvituð um stöðu, væntingar og viðhorf aldraðra þegar kemur að atvinnuþátttöku og jákvæðum áhrifum þess á líðan eldri borgara. Þess vegna er hér, eins og áður segir, um mikilvægt skref að ræða að hækka frítekjumarkið vegna atvinnutekna í 200.000 kr. á mánuði. Ef við horfum t.d. til áðurnefndra kannana held ég að formaður Landssambands eldri borgara hafi vanmetið svolítið mikilvægi þessarar hækkunar frítekjumarksins. Ég held að hækkun frítekjumarksins ein og sér muni gera það að verkum að þeim muni fjölga sem sjá hag sinn í því að nýta sér þennan atvinnuteknaafslátt.
Ég vil einnig nefna það hér í þessu sambandi að ég held að það væri skynsamlegt í endurskoðunarvinnunni að skoða af fullri alvöru hvort það gæti ekki gagnast ellilífeyrisþegum betur að sameina núverandi frítekjumörk í eitt almennt frítekjumark. Það myndi auðvelda eldra fólki að láta af störfum fyrir þá sem áhuga hafa á því.
En næst aðeins að heilbrigðismálunum. Framlög til heilbrigðismála aukast um 16,3 milljarða og eru þau í frumvarpinu stærsti einstaki útgjaldaliðurinn til hækkunar. Landspítalinn er stærsta og mikilvægasta heilbrigðisstofnun landsins, eins og við þekkjum. Hann hefur á að skipa framúrskarandi starfsfólki sem vinnur óeigingjarnt starf á degi hverjum oft við erfiðar aðstæður og álagið er búið að vera gríðarlegt. Miklar umræður hafa skapast um rekstrarvanda spítalans. Sá vandi á sér margþættar rætur. Kjarni málsins er sá að spítalinn og sú þjónusta sem hann veitir vex í raun hraðar en fjárlög gera ráð fyrir. Flóknir kjarasamningar hafa verið gerðir sem erfitt hefur verið að kostnaðarmeta, þar á meðal kjarasamningur við lækna árið 2015. Samningurinn hefur verið góður fyrir heilbrigðiskerfið en kostnaðarþættir hafa verið vanmetnir.
Það er að sjálfsögðu mjög brýnt að búa heilbrigðisstarfsfólki viðunandi starfsskilyrði. Á Landspítalanum hafa ákveðnar deildir glímt við vandamál vegna myglu og hafa sumir starfsmenn átt við langvinn veikindi að stríða vegna málsins. Mönnunarvandi spítalans er einn af stærstu áskorununum og er alveg ljóst að fólk fæst ekki til starfa ef vandamál vegna myglu eru til staðar í húsnæði spítalans og valda veikindum hjá starfsfólki. Þess vegna held ég að afar brýnt sé að vinna í því máli. Mygla á Landspítalanum kostar ríkissjóð verulegar fjárhæðir árlega fyrir utan þau gríðarlegu óþægindi sem hún hefur valdið mörgu starfsfólki þar. En hvað fjárveitingar til spítalans varðar almennt þá tel ég að það þurfi meiri sveigjanleika. Landspítalinn er fyrst og fremst bráðasjúkrahús. Það er því eðli þjónustunnar sem spítalinn veitir að hún er ófyrirséð. Af þeim sökum hentar illa að vera alveg á föstum fjárlögum og við þekkjum að bráðamóttaka lokar ekki þegar fjárveiting er búin. Þess vegna er mikilvægt í mínum huga að horft verði til þess að spítalinn hafi í raun og veru ákveðinn sveigjanleika þegar kemur að fjárveitingum.
Álag á heilbrigðiskerfið er búið að vera gríðarlegt, eins og ég nefndi og við þekkjum. Hún mun aukast jafnt og þétt næstu ár og áratugi með hækkandi lífaldri þjóðarinnar. Ef við ætlum að tryggja framúrskarandi heilbrigðisþjónustu hér á landi og fyrir alla þarf heilbrigðiskerfið að verða mun skilvirkara. Þjóðin er að eldast, sem þýðir aukið álag á kerfið. Aldraðir, 80 ára og eldri, þurfa mesta heilbrigðisþjónustu. Auk þess hefur ný heilbrigðistækni kallað á aukinn kostnað. Við verðum að horfast í augu við vandann og tryggja langtímafjármögnun mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins.
Ég vil óska nýjum heilbrigðisráðherra sérstaklega velfarnaðar í hans mikilvæga starfi og ég veit að það eru margir sem horfa til hans með eftirvæntingu um að vel takist til að færa rekstur spítalans, sérstaklega Landspítalans, til betra horfs og bæta þjónustuna, taka á mönnunarvandanum og mörgum þeim vandamálum sem steðjað hafa að rekstri spítalans.
Herra forseti. Í lokin vil ég aðeins koma inn á fjármálastefnuna, tillögu til þingsályktunar, fyrir árin 2022–2026, sem er rædd hér samhliða fjárlagafrumvarpinu. Á blaðsíðu 12 er vikið að sveitarfélögunum. Þar kemur fram að skuldir sveitarfélaganna hafa aukist frá gildandi fjármálaáætlun, sem skýrist m.a. af verri afkomu árið 2020 en áætlað var. Sem hlutfall af vergri landsframleiðslu er vöxtur í skuldum sveitarfélaganna allnokkur á gildistíma áætlunarinnar og skuldastaða sveitarfélaganna er áhyggjuefni. Eins og við þekkjum öll þá veita sveitarfélögin mjög mikilvæga þjónustu sem er lögbundin. Þess vegna skiptir miklu máli að reynt sé að koma til móts við sveitarfélögin þegar kemur að skuldastöðunni því að það er nú einu sinni þannig að hún á rætur sínar að rekja, að hluta, eins og staðan er núna, til veirufaraldursins.
Ég vildi nefna það í lokin að í frumvarpinu eru um 13 milljarðar, að mig minnir, lagðir í loftslagsmál. Þetta er eitt af þessum stóru málum sem brenna á þjóðum heims í dag, þ.e. loftslagsmálin. Í því sambandi vildi ég segja að það er mjög mikilvægt í mínum huga að það liggi fyrir árangursmælingar vegna þess sem við setjum í þennan mikilvæga málaflokk, að við getum séð það nokkuð vel hver árangurinn er af þeim fjárveitingum sem við veitum í málaflokkinn. Þetta hefur verið rætt innan fjárlaganefndar, og fleira er varðar ríkisreksturinn, að það þarf að bæta árangursmælingar og eftirlitið með fjárveitingum almennt.
Þegar kemur að loftslagsmálum þá þarf að sjálfsögðu að vera hægt að sýna fram á að fjárveitingar sem lagðar eru í málaflokkinn skili árangri. Sumt af því hefur verið óljóst að mínu mati. Kolefnisskatturinn skilar um 6 milljörðum í ríkissjóð núna, að ég held, samkvæmt þessu frumvarpi, en ég tel að það sé mikilvægt að þar sé gætt jafnræðis. Það er mjög mikilvægt í mínum huga að horft sé til þess að skatturinn bitni ekki á þeim sem hafa lægri tekjur. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði könnun eða skýrslu um þetta þar sem farið var yfir þennan skatt. Þar kom m.a. í ljós að kolefnisskatturinn bitnar á þeim sem eru tekjulægri og að hluta til þeim sem búa á landsbyggðinni. Það er mjög óheppilegt að mínu mati og ég hef áður talað fyrir því hér að það sé mikilvægt að þetta sé haft í huga, að við finnum leiðir til þess að þessum skattstofni sé jafnað eðlilega niður á alla landsmenn. Þetta er einn af þeim skattstofnum sem lýtur að loftslagsmálum.
Herra forseti. Að lokum segi ég að ég hef væntingar til þess að nefndin skoði þessar árangursmælingar sem ég tel vera mjög mikilvægar. Ég veit að það hefur verið áhugi innan fjárlaganefndar að fara vandlega yfir það hvernig bæta má þetta og í raun nýta fjármagnið betur til að ná tilteknum árangri þegar kemur að fjárveitingum í mikilvæga málaflokka. Þetta á að sjálfsögðu við um fleiri málaflokka. Þetta á við um heilbrigðismálin, svo dæmi sé tekið. Þar er brýnt að við nýtum alla þá kosti, alla þá möguleika sem við höfum til að bæta þjónustuna. Hluti af því er að mínu mati að semja við einkaaðila um tiltekna þjónustu. Allt skiptir þetta máli fyrir þjónustustigið, að það sé sem best, og auk þess að það sé hagkvæmt fyrir ríkissjóð. Það á að sjálfsögðu að vera meginstefið.
En það er nú margt sem ég hef ekki komið inn á í þessu frumvarpi. Nú fara væntanlega að berast umsagnir til fjárlaganefndar og gestir að koma á fund nefndarinnar. Það verður að sjálfsögðu fróðlegt að sjá hvað umsagnaraðilar hafa að segja um frumvarpið. En stóru tíðindin eru þau að í þessu frumvarpi er staða ríkissjóðs talsvert betri, eins og ég nefndi í upphafi, á þessum tímapunkti en menn þorðu að vona. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni að hagkerfið sé farið af stað. Við vonum svo sannarlega að sú hagvaxtarspá sem liggur fyrir, 5,3%, nái fram að ganga. Það er ákaflega mikilvægt fyrir ríkisfjármálin og heimilin almennt í landinu að hún nái fram að ganga. Vissulega er enn þá óvissa í t.d. veirufaraldursmálunum en við vonum að sjálfsögðu að sú óvissa verði ekki eins mikil og hún var í upphafi, fyrir réttu ári síðan þegar við sáum fram á að fara í þá dýpstu kreppu sem við höfum lent í í áraraðir og mesta samdrátt í 100 ár, þannig að það eru góð tíðindi í efnahagsmálum, myndi ég segja. En við þurfum að sjálfsögðu að vera á varðbergi gagnvart verðbólgunni. Seðlabankinn, og peningamálastefnunefndin, hefur verið að hækka vexti til þess að slá á verðbólguna, sem er nú yfir viðmiðunarmörkum, og verðbólguvæntingar sömuleiðis. Það er mjög mikilvægt að við séum á varðbergi gagnvart þessu því að það getur farið af stað ákveðin keðjuverkun ef við náum ekki að halda verðbólgunni niðri, sem er okkur óhagfelld, sérstaklega heimilunum.
Að lokum vil ég segja það, herra forseti, að ég tel að það séu jákvæð teikn á lofti og vonandi ganga þau eftir. Þetta frumvarp er því jákvætt og mun vonandi verða til þess að við náum að halda hagvexti og sjá fram á batnandi lífskjör á nýju ári.