fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þessu til viðbótar kom hv. þingmaður inn á tillögur sem Viðreisn hefur gert við afgreiðslu fyrri fjárlaga um að liðka fyrir um það að samið verði við einkareknar stofur í heilbrigðisþjónustu til að létta á álagi á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og stytta biðlista. Það er auðvitað margt sem gengur á við afgreiðslu fjárlaga, margar atkvæðagreiðslur og útskýringar og allt sem því fylgir. Bara til upprifjunar: Hver voru svona kjarnarök stjórnarmeirihlutans í því að fella þessar tillögur á fyrri stigum þar sem þetta virðist nú skyndilega vera komið á verkefnalista, ef maður reynir að lesa með jákvæðum hætti út úr orðum stjórnarsáttmálans? Getur formaður Viðreisnar aðstoðað mig við að rifja upp með hvaða rökum þessar góðu tillögur voru felldar á fyrri stigum?