152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ræða um samgöngumál og taka þá upp umræðu um hluti sem eru inni í plönum hjá ríkisstjórninni eins og Hvalfjarðargöng og Sundabraut. Þótt ég búi ekki í kjördæmi hv. þingmanns þá bý ég uppi í Kjós þannig að Sundabrautin yrði nú ansi góð viðbót við að stytta ferð mína hingað í bæinn á hverjum morgni. Það er einmitt það sem mig langaði aðeins að ræða. Nú hefur maður séð margt fólk flytja upp á Akranes og jafnvel upp í Borgarfjörð en vinna samt jafnvel hér í bænum og það hefur sérstaklega aukist eftir að Hvalfjarðargöngin urðu gjaldfrjáls. En þegar maður les sáttmála ríkisstjórnarinnar er endalaust talað um fjölbreyttar fjármagnanir til að gera þetta og hitt, sérstaklega í samgöngumálum. Eins og hv. þingmaður nefndi verður þetta oft að svokölluðum samvinnuverkefnum eða PPP-verkefnum og þau leiða oft til gjaldtöku. Sú gjaldtaka vinnur hins vegar á móti því að taka á þessari byggðaþróun. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvað honum þætti um það að vera með gjaldtöku í þessum framkvæmdum eða að vera með þær frjálsar og fjármagnaðar af ríkissjóði.