152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:53]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan þá er það mitt mat að gjaldtaka af ökutækjum og umferð sé mjög há nú þegar. Þegar við vorum að ræða þetta í umhverfis- og samgöngunefnd á liðnu kjörtímabili hélt ég á lofti því sjónarmiði að ef það ætti að fara í gjaldtöku sérstaklega á ákveðnum verkefnum þá yrði að koma til lækkun á almennri gjaldtöku á umferð á móti. Þá gæti einhver spurt: Bíddu, er það ekki bara leikur sem endar á núll? En það þarf ekki endilega að vera þannig vegna þess að ef við tökum þetta Covid-tímabil út fyrir sviga, sem er nú vonandi ekki varanlegt, þá er mjög hátt hlutfall umferðar á Íslandi einskiptisumferð; ferðamenn, Gísli Marteinn fær sér ábyggilega bíltúr af og til og þar fram eftir götunum, notendur sem eru ekki í daglegum ferðum yfir lengri veg. Í því samhengi getur þetta komið til greina. Það gekk t.d. mjög vel með Hvalfjarðargöngin, algjörlega frábær framkvæmd sem gekk upp og miklu meira en það hvað alla rekstrarþætti varðar. Arðsemi þeirra ganga varð t.d. örugglega hvergi meiri hvað þróun fasteignaverðs og annað þess háttar varðar en á Akranesi, svo fjarar það auðvitað út eins og gengur, en þetta hefur áhrif fyrir allt samfélagið norðan ganga. Meginatriðið held ég að verði að vera það að komast áfram með framkvæmdirnar því að í þeim felast svo mikil verðmæti í sjálfu sér og það er auðvitað algerlega galin staða að við séum hér enn án þess að Sundabraut sé komin af stað. Þegar ég hætti í starfi aðstoðarmanns samgönguráðherra í október 2006 var verkefnið rétt að komast af stað.