fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég held að það sem við leggjum í svona verkefni á erlendri grund muni spara okkur tífalt í kostnaði hér við móttöku fólks og þá erum við ekki einu sinni að telja upp hvað við erum að bæta líf fólks. Ég tel hins vegar að það séu mörg tækifæri, sér í lagi þegar kemur að hlutum tengdum loftslagsvánni, nýtingu grænnar orku og nýsköpun. Nýsköpun er líka málaflokkur sem getur hjálpað þróunarlöndunum að lyfta upp hlutum, svo ekki sé talað um að styrkja konur í því að stofna lítil fyrirtæki og gera ýmsa slíka hluti. Þarna eru mikil tækifæri.