breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Frú forseti. Við í þingflokki Miðflokksins tökum undir þau sjónarmið sem komu fram í ræðu hv. þm. Ásthildar Lóu Þórsdóttur hér rétt á undan. Við munum styðja við þessa breytingartillögu um að framlengja Allir vinna-úrræðið til loka árs 2022. Þó að millilending hafi náðst í störfum efnahags- og viðskiptanefndar, í tengslum við þessa framlengingu að hluta til, teljum við í Miðflokknum að betur hefði farið á því, og verið skynsamlegt margra hluta vegna að framlengja verkefnið í heild sinni út árið 2022.