Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 24. fundur,  19. jan. 2022.

úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara.

12. mál
[18:28]
Horfa

Flm. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem hafa blandað sér í umræðuna um þetta mál. Ég álít að það sé mikilvægt að sækja upplýsingar víða og vinna með þær og þess vegna sé ekki nægjanlegt að fá skýrslu um málið heldur þurfi að draga saman og vinna með upplýsingar um úr hverju þarf að bæta og koma með tillögur allt í sömu ferðinni. Ég held að það sé mikilvægt að þetta gerist allt hratt vegna þess að bara á allra síðustu árum hafa miklar upplýsingar safnast saman. Það þarf að sækja upplýsingar til tjónþola. Það þarf að sækja upplýsingar til verktaka. Það þarf að sækja upplýsingar til tryggingafélaganna og til ríkisstofnana og verkefnið er víða. Það er hjá ofanflóðasjóði, sem er hjá umhverfisráðuneytinu, það er hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands, sem ég er reyndar ekki með á hreinu hvar er staðsett í stjórnkerfinu, en þarna eru náttúrlega stórir aðilar. Svo snertir þetta atvinnuvegina. Mér fannst líka mjög mikilvægt að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kom inn á samanburðinn við heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir. Hann er vissulega náttúruhamfarir en hann er annars eðlis og þess vegna finnst mér hann ekki falla undir akkúrat þessa vinnu. En mér finnst samt sem áður að ýmislegt sé hægt að nýta í báðar áttir og mér finnst einmitt að ýmis viðbrögð stjórnvalda við hamförunum sem fylgja faraldrinum draga fram það sem hefur vantað í tryggingar vegna náttúruhamfara af völdum skriðufalla, snjóflóða o.s.frv., það er það sem snýr að atvinnulífinu. Það er kannski bara fyrst og fremst vegna sögunnar en það hefur miklu fleira verið óljóst gagnvart atvinnulífinu heldur en heimilum fólks þannig að þar er mikið verk að vinna og margt sem mætti horfa á hvernig hefur verið leyst í þeim náttúruhamförum sem kórónuveirufaraldurinn er. Svo dró hv. þingmaður líka athyglina að gagnsæi tryggingarskilmála og það sem ég vildi einmitt draga fram í framsöguræðunni var þegar tryggingarskilmálar hafa áhrif á hvað er tryggt samkvæmt náttúruhamfaratryggingu, þá er, hvað skal segja, komið veldi á ógagnsæið að nokkru leyti. Það er hluti af því sem ég held að sé hægt að upplýsa miklu betur og auka gagnsæi um það hvað er tryggt, bæði hjá heimilum og atvinnulífinu óbeint í gegnum valfrjálsar og lögbundnar tryggingar og samspil við þessar sameiginlegu tryggingar okkar sem náttúruhamfaratryggingarnar eru. En ég vil ekki sleppa því að nefna hvað þar hafa orðið miklar framfarir á stuttum tíma og rauninni bylting frá því sem var fyrir nokkrum tugum ára þegar við höfðum ekki slíkar tryggingar.