úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara.
Forseti. Eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni er sagt að úttektinni verði skilað í formi skýrslu til Alþingis eigi síðar en 1. júlí 2022. Þetta er að einhverju leyti skýrslubeiðni en samt þingsályktunartillaga um að skila skuli skýrslu. Fyrir þá sem átta sig ekki alveg á muninum þarna þá er þingið með nokkrar leiðir til þess að fá gögn frá ríkisstjórninni eða frá framkvæmdarvaldinu, þ.e. með skriflegri fyrirspurn, munnlegri fyrirspurn, skýrslubeiðni, og svo greinilega í formi þingsályktunar. Þegar rannsóknarskýrsla Alþingis var gerð var ályktað um það í nefnd um að hún skyldi gerð. Þannig að það eru margar leiðir fyrir þingmenn til að fá gögn um ýmislegt. Ég var t.d. með skýrslubeiðni um þær ábendingar sem komu fram í rannsóknarskýrslum Alþingis, hvernig brugðist hefði verið við þeim. Ég bjóst við að þetta væru mjög aðgengilegar upplýsingar af því að við lögðum tæplega milljarð í það að búa til þessar rannsóknarskýrslur og maður hefði haldið að ábendingarnar sem þar komu fram væru eitthvað sem fólk myndi taka alvarlega og bregðast við og að haldið væri utan um þær á einhvern skipulagðan hátt, sem reyndist síðan ekki vera. Það þurfti að fara í ansi mikla vinnu og tók tvö til þrjú ár eða eitthvað svoleiðis að taka það saman, sem var mjög áhugavert út af fyrir sig. Hérna er einmitt verið að fjalla um atriði sem eru ekki til staðar og þarf að vinna á einhvern ákveðinn hátt. Og þegar gert ráð fyrir tíu vikum til að vinna þær upplýsingar samkvæmt skýrslubeiðni þá er kannski meira viðeigandi að vera með sérstaka þingsályktun um það. En þá finnst mér það í rauninni athyglisvert, ef horft er á hvernig þingið getur beðið um upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu, hvernig röðunin er á því í skilningi umfangs þeirra gagna sem þingið biður um. Þetta er athyglisverð tillaga hvað það varðar.