152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.

232. mál
[16:06]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka staðgengli hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir þessa yfirferð. Hæstv. ráðherra sagði að haldið yrði áfram með viðspyrnustyrkina. Ég vil fá að spyrja, af því að þetta eru nýjar upplýsingar fyrir mér, hvenær þetta var ákveðið, hve lengi þeir verði áfram í gildi og til hvaða fyrirtækja þeir muni þá taka. Er þetta eitthvað sem hefur verið ákveðið nýlega á ríkisstjórnarfundi? Og hvenær kemur þá þingmál um þetta hingað inn í þingið? Mér þætti fróðlegt að heyra svör við því.