almannatryggingar.
Öryrkjar borga ekki í lífeyrissjóð. Því fyrr á lífsleiðinni sem örorkan hefst þeim mun minni eru lífeyrisréttindi þeirra eðli málsins samkvæmt. Verst er staða þeirra sem hafa verið öryrkjar alla sína starfsævi frá 18 ára aldri og það er t.d. það fólk sem í dag, eins og hlutirnir eru, missir aldurstengdar örorkubætur. Til að bæta t.d. þessum öryrkjum slæma stöðu þeirra og réttindaleysi þeirra hjá lífeyrissjóðum hafa þeir fengið upp undir 52.631 kr. á mánuði ofan á örorkubætur sínar, enda gefur það augaleið að sá sem aldrei hefur verið á vinnumarkaði vegna örorku hefur ekki greitt í lífeyrissjóð. Þessar greiðslur fara svo lækkandi því lengur sem örorka hefur varað þannig að upphæð aldurstengdrar örorku er í jöfnu hlutfalli við það hvenær á lífsleiðinni slys eða veikindi verða og taka örorku hefst. Þegar þetta fólk verður 67 ára færist það sjálfkrafa af örorku og yfir á ellilífeyri sem er gott og blessað, enda er hann sem betur fer hærri en örorkubætur. Hins vegar er hann ekki hár og meðan ellilífeyrisþegar sem koma af vinnumarkaði fá viðbætur í gegnum sína lífeyrissjóði eru engir lífeyrissjóðir fyrir hendi hjá öryrkjum sem komast á eftirlaunaaldur.
Frumvarp hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar og allra þingmanna Flokks fólksins snýst um að aldurstengdu örorkubæturnar, sem hæstar eru 52.631 kr., fái að halda sér til þeirra öryrkja sem komast á eftirlaunaaldur á svipaðan hátt og greiðslur úr lífeyrissjóðum hjá þeim sem hafa getað greitt í lífeyrissjóði á starfsævi sinni. Fyrst þessi litla upphæð er hugsuð til að bæta öryrkjum slæma stöðu þeirra og réttindaleysi hjá lífeyrissjóðum skýtur það óneitanlega skökku við að þegar lífeyrisaldri er náð skuli þessar greiðslur falla niður. Svo er þetta hreinlega spurning um gildi okkar sem þjóðar, hvernig við hugsum um aldraðra og þá ekki síst um þau sem verst eru stödd. Það er sem betur fer svo að stór hópur aldraðra býr við góð kjör en það er einnig staðreynd að allt of stór hópur aldraðra býr við bág kjör og berst í bökkum. Þetta frumvarp snýst um þann hóp og það að svipta þau aldurstengdum örorkubótum um leið og þau komast á ellilífeyrisaldur er, svo ekki sé sterkara að orði kveðið, að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Við skulum ekki taka af þeim sem minnst hafa. Okkur er lítill sómi að því.
Ég treysti því að ríkisstjórnin veiti þessu sjálfsagða réttlætismáli brautargengi.