almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir greinargóða lýsingu á því sem hér er til umræðu og lýsa eindregnum stuðningi við það. Þetta væri verðugt fyrsta skref í því sem hér var boðað fyrir tveimur dögum, það væri komið í ferli, hin langþráða heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins. Það er dekksti bletturinn á íslensku samfélagi að mínu mati og það að halda öllum þeim þúsundum og tugþúsundum í fátækt sem hér eiga um sárt að binda vegna slysa, örorku eða hafa hreinlega tekið þátt í uppbyggingu innviða íslensks samfélags alla sína ævi og eru komin að þeim ellimörkum sem meina fólki að stunda vinnu sér til tekjuöflunar.
Þess vegna óska ég þess að þetta frumvarp hljóti brautargengi nú að þessu sinni. Það væri góð vísbending um framhaldið sem búið er að heita okkur hér í þessum sal. Ég er að sjálfsögðu heils hugar sammála því sem hv. þingmaður vék að í sinni ræðu, að auðvitað fellur ekki örorkan niður við það eitt að ná eftirlaunaaldri. Þvert á móti. Eins og allir vita er það í öfugu hlutfalli, það eykur frekar þörfina fyrir aðstoð og útlagðan kostnað eftir því sem árunum fjölgar og elli og hrumleiki fer að hrjá fólk. Þá verður örorka í flestum tilfellum þungbærari, erfiðari og dýrari viðureignar. Þess vegna óska ég þess eindregið að rétthugsandi þingmenn hér staddir og fjarstaddir muni veita þessu brautargengi af góðu hjarta og heilum hug.