Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

Menntasjóður námsmanna.

175. mál
[16:41]
Horfa

Flm. (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna. Með mér á þessu máli eru þingmenn þingflokks Viðreisnar. Frumvarp þetta er um tvær litlar en þýðingarmiklar breytingar sem báðar fela í sér markvissari fjárhagslegan stuðning við námsmenn á meðan á háskólanámi stendur. Markmiðið er einfaldlega að tryggja að námsmenn geti framfleytt sér án þess að þurfa að vinna mikið með námi en stúdentar í íslenskum háskólum þurfa margir hverjir að vinna svo mikið með námi að það hefur áhrif á námsframvindu þeirra og um leið á námsárangur. Eins og ég sagði er um að ræða tvær tillögur. Báðar eru þær að norrænni fyrirmynd. Sú fyrri felst í því að nemendur geti sótt um námsstyrk sem nemur um 72.000 kr. á mánuði og er miðað við að það sé styrkur eða stuðningur, aðstoð við þær aðstæður að nemendur eru í fullu námi og þetta sé stuðningur og úrræði sem bjóðist í fimm námsár.

Þessu er ætlað að skapa aðstæður sem og hvata fyrir námsmenn til að einbeita sér að náminu og til þess að geta gert það af fullum þunga og mun með því hraða námsframvindu. Stuðningur í formi aðstoðar sem þessarar skiptir miklu máli fyrir námsmennina sjálfa en hefur líka þýðingu fyrir háskólaumhverfið og háskólana og þá um leið óbeint á ríkissjóð. Með bættri námsframvindu útskrifast nemendur á skemmri tíma og með því að nemendur fái aukið svigrúm til að vera með hugann allan við námið ætti það að draga úr líkum á brottfalli úr námi og þannig nýtist fjármagnið betur. Þetta er líka hugsað sem stuðningur við háskólastúdenta til þess að skapa þeim betri aðstæður til náms og er í mínum huga verkfæri til að tryggja jafnrétti til náms en um leið hef ég trú á því að þetta hafi þýðingu fyrir þjóðfélagið allt og sé til þess fallið að draga úr því að nemendur hætti námi án þess að hafa lokið gráðu eða prófi.

Þetta er önnur megintillaga frumvarpsins. Hin lýtur að því að grunnframfærsla námslána samsvari að lágmarki neysluviðmiði félagsmálaráðuneytisins, eins þokkafullt og spennandi og það nú hljómar, og taki hækkunum í samræmi við verðlag. Þetta er ekki reyndin í dag og þann veruleika held ég að námsmenn þekki allir vel. Með því að ramma þetta skilyrði skýrt inn í lagatextann sjálfan yrði tryggt að grunnframfærsla námslána yrði sú sama og stuðst er við í neysluviðmiðum félagsmálaráðuneytisins fyrir aðra hópa samfélagsins. Árum og áratugum saman, vil ég leyfa mér að segja, hefur komið fram af hálfu stúdenta og stúdentaráðs að grunnframfærsla námsláns sé of lág til að námsmenn geti framfleytt sér á henni einni sem er ástæða þess að svo margir stúdentar vinna svo mikið með námi. Ég held að það megi vel nálgast málið þannig að grunnframfærsla sem er of lág vinni gegn framvindu háskólanáms. Ég sat sjálf í stúdentaráði, ekki alveg í fyrra heldur fyrir 20 árum síðan og þá var grunnframfærslan veigamikið atriði í málflutningi okkar fyrir jafnrétti til náms, betri kjörum og stuðningi við námsmenn og ég verð að segja að það sló mig þegar ég tók sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í fyrra að átta mig á því hversu tungutak stúdentahreyfingarinnar hefur lítið breyst. Það hefur lítið breyst þrátt fyrir að stúdentaforystan hafi verið mjög öflug í hagsmunabaráttu sinni. Ég held að það hljóti að skrifast á það að stjórnvöld hafi ekki lagt nægilega vel við hlustir.

Ég vil segja um þetta mál að Viðreisn hefur frá því að flokkurinn var stofnaður árið 2016 lagt mikla áherslu á menntamál, lagt mikla áherslu á mikilvægi háskólanna fyrir þjóðfélagið. Mér finnst passandi núna þegar við erum í þeim aðstæðum sem við okkur blasa eftir heimsfaraldur og efnahagslegt áfall og höfum átt í samtali um það í þessum sal og í samfélaginu öllu að þjóðfélagið þurfi á fjölbreyttari stoðum atvinnulífs að halda en nú er reyndin, þá sé í stöðu eins og hún er núna ákveðin tækifæri í því að fjárfesta markvisst áfram í menntun og menntakerfinu. Í gegnum menntakerfið og nýsköpun sköpum við öðruvísi störf, eftirsóknarverð störf og getum þannig mótað samfélag sem laðar að sér fólk í stað þess að horfa jafnvel upp á það að ungt fólk sem fer utan til náms kjósi að koma ekki aftur heim. Með því að standa vörð um háskólamenntun og háskólaumhverfið erum við að stuðla að því að fólk sem sækir sér framhaldsmenntun erlendis velji að koma aftur heim.

Ég ætla ekkert að fara á dýptina í umfjöllun um frumvarpið sjálft. Frumvarpið er tvær greinar og hugmyndafræðin að baki skýrir sig að mestu leyti sjálf en vil þó segja að fjárhagslegur stuðningur við námsmenn og námslánakerfið sem stjórnvöld skapa er besta leiðin til að tryggja jafnrétti til náms. Námslánakerfið á hverjum tíma er svar stjórnvalda við því hvernig við viljum tryggja jafnrétti til náms. Það er í mínum huga grundvallaratriði og grundvallarforsenda að námsstyrkur og námslán dugi stúdentum til framfærslu. Við vitum að árum og áratugum saman hafa stúdentar bent á að svo sé ekki og það gefur augaleið að það er í þágu allra að skapa stúdentum þær aðstæður að þau geti sinnt námi sínu af heilum hug. Núverandi stuðningsfyrirkomulag í námslánakerfinu er fyrir hendi en hefur nálgast málið frá hinum endanum. Það felur í sér niðurgreiðslu vaxta fyrir fólk sem hefur lokið námi þannig að stuðningurinn kemur ekki fram við fólk fyrr en að námi loknu. Ég er á því að þessi leið gagnist námsmönnum betur, að við séum að styðja við stúdenta á meðan á námi stendur. Stuðningskerfið í gildandi lögum kveður á um niðurfellingu hluta lánsins eftir útskrift, það sem sagt léttir á greiðslubyrðinni þegar fólk er komið út á vinnumarkaðinn en felur hins vegar ekki í sér þennan beina stuðning við námsmenn sem hér er verið að horfa til. Varðandi kostnað þá jú, það verður að gera ráð fyrir einskiptiskostnaði þegar og ef þetta frumvarp verður að lögum en að þeim tíma liðnum erum við að horfa á tilfærslu kostnaðar.

Virðulegi forseti. Stjórnvöld eiga að standa með og standa vörð um háskólamenntun með því að gera háskólunum kleift að sækja fram. Það er gert með því að búa háskólunum sjálfum góðar aðstæður og góð rekstrarskilyrði og það er gert með því að tryggja háskólastúdentum viðunandi aðstæður til náms.

Þetta er framlag til þess að bæta stöðu námsmanna og ég vil ljúka orðum mínum á því að vísa málinu til allsherjar- og menntamálanefndar. Það er einlæg ósk mín að málið fái þar góða umfjöllun og umræðu og bjartsýnn þingmaður í stjórnarandstöðu ætlar að gera sér vonir um að þetta geti jafnvel orðið að lögum.