Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

Menntasjóður námsmanna.

175. mál
[16:50]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Það má vel vera að ég misskilji þetta framlagða frumvarp, en það segir í núgildandi lögum um námsstyrki að styrkur skuli nema 30% af niðurfærslu af höfuðstól námslánsins ásamt verðbótum að námi loknu, þ.e. bæði skólagjaldalán og framfærslulán námsmannsins. Ef ég skil þetta frumvarp rétt er styrkurinn orðinn krónutala af framfærslu en ekkert er talað um styrk varðandi skólagjaldalánin, af því að þeir sem taka stærstu lánin eru jú þeir sem fara til útlanda í nám og þurfa þar af leiðandi að reiða sig á þessi skólagjaldalán frá Menntasjóði námsmanna, þannig að þá erum við að tala um að 30% framfærslulán væri enn styrkur en allt skólagjaldalánið væri þá lán í þeim skilningi.

Ég spyr þingmanninn hvort ég misskilji hér eitthvað. Af því að það segir líka í frumvarpinu að styrkinn verði hægt að fá í 45 mánuði, hefðbundinn árafjöldi í skóla er í kringum fimm ár, ef nemandi þiggur styrk allt sitt nám, þ.e. allt bachelor-námið og meistaranámið og klárar allt á réttum tíma. Í dag geta nemendur fengið fyrir 480 ETS-einingar, sem eru í kringum átta ár, 30% af öllum þessum einingum ef þeir ljúka með gráðu. Þannig að skil ég það rétt, að við gætum verið að missa þarna út doktorsnemana og það svigrúm sem þarna er undir? Er hægt að fá styrkinn einan og sér eða þarf að taka lán til að fá þennan styrk? Ef svo er þá verður eiginlega engin breyting á þessu fyrirkomulagi, af því að, eins og ég sagði, 30% niðurfellingin, ef þú klárar á réttum tíma, er til staðar og námslánin eru vaxtalaus á meðan þú ert í námi, þannig að námslánið sem slíkt er þá alveg jafn hátt, hvort sem þú tekur fjármunina á mánuði eða allt tímabilið.