152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:16]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil bjóða hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, velkomna í þingsal. Við erum að ræða fjarskiptalög og ég fagna áhuga hennar á málefnalegri umræðu um þetta mikilvæga mál sem hún leggur nú fram í fyrsta sinn en er verið að ræða í þriðja sinn. Þetta er mjög mikilvægt mál þannig að ég kem hér upp til að fagna áhuga ráðherrans á málefnalegri umræðu um hennar frumvarp.