152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:14]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni. Það að hafa góð fjarskipti er gríðarlega mikilvægur innviður. Við höfum öll upplifað á ferðum okkar um landið að detta inn og út úr símasambandi og mig langar því að spyrja hv. þingmann hvaða skoðun hann hafi á fjarskiptakerfum á vegum og í dreifbýli og kannski hvort það lagast eitthvað með þessu frumvarpi.