152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[19:51]
Horfa

Arnar Þór Jónsson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin og vil ítreka það aftur að fyrirspurn mín byggir á þeirri forsendu að þessar ákvarðanir hafi verið teknar af góðum hug. Ég tel hins vegar mikilvægt að hér ríki traust milli skattgreiðenda og þingsins. Ég vil því nota tækifærið og minna þingmenn á, og alla þá sem hafa hönd í bagga með að deila út þessum fjármunum, að gæta fyllstu ábyrgðar og gæta að því að eftirliti með ráðstöfun á þessum fjármunum sé sinnt.