Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[22:42]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Líkt og ég sagði áðan þá hef ég ekki séð neitt koma fram um að það blasi við að lögum hafi ekki verið fylgt í þessu ferli. Ég endurtek það hins vegar að ég tel gríðarlega mikilvægt að bæði Seðlabankinn og Ríkisendurskoðun fari kirfilega yfir allt þetta ferli eins og nú er verið að gera. Við þurfum, svo að við skellum okkur í að segja það hér einu sinni enn, að velta við hverjum steini í því ferli. Við tökum það svo auðvitað til okkar og förum yfir það og gerum breytingar á okkar lagaumgjörð í takti við það sem þar kann að koma fram.