152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[00:30]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður trúi því sem varaformaður Framsóknarflokksins hefur sagt um viðvaranir sínar. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvað henni finnist um það að hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra hafi ekki brugðist við viðvörunarorðum hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur.